Availability: Á lager

Klór

SKU: SKLD0KLOR

990 kr.

Þótt Sveinbjörn Þór fari daglega í sund er alltaf svitalykt af honum og þótt mamma hans sé dáin er eins og hún viti ekki almennilega af því enn. Þótt Emma sé falleg og gáfuð og eigi fullkominn kærasta, er hún bæði litblind og lífsleið og þótt vinnufélagi hennar, Birna Eygló, sé ósköp leiðinleg og litlaus stendur hún í æsilegu ástarsambandi við Rúnar bókaútgefanda sem fyrirlitur alla nema kannski Óla pulsu, þroskaheftan starfsmann hreinsunardeildarinnar sem lætur stjórnast af græðgi…

Klór er safn smásagna sem fléttað er haganlega saman. Lýst er einum degi í lífi fólks sem allt tengist á einhvern máta. Þetta er fyrsta bók Þorsteins Guðmundssonar en hann hefur áður skrifað nokkur leikrit, bæði fyrir leiksvið og útvarp. Hann er kunnur fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum Fóstbræður og er einn af höfundum þeirra þátta.

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2000

Tungumál

Kápuhönnun

Form

Kilja

Ástand

notuð