Availability: Á lager

Inferno

Höfundur: August Strindberg
SKU: SKLD0INFER

2.990 kr.

August Strindberg (1849-1912) er sá norræni rithöfundur sem einna hæst ber í heimsbókmenntunum. Hér á landi er hann þekktastur fyrir sígild leikrit sín, sem hafa verið þýdd og leikin á íslensku, en síður fyrir prósaverk sem þó hafa borið hróður hans víða. Því telst það viðburður að hér er komið frægasta sagnaverk hans, Inferno, í vandaðri þýðingu Þórarins Eldjárns.

Inferno er sjálfsævisögulegt verk og fjallar um rithöfund, búsettan í París, sem yfirgefur fjölskyldu sína til þess að helga sig rannsóknum í efnafræði og er staðráðinn í að komast til botns í leyndardómum gullgerðarlistar. Þær rannsóknir leiða hann þó út í alls konar kukl og guðspekilegar vangaveltur og fyrr en varir renna veruleiki og hugarástand saman. Hann fer að sjá ofsóknir og samsæri gegn sér í hverju horni, útilokar tilviljunina sem sjálfstætt afl og upplifir því sannkallað Infernó innra með sjálfum sér.

Inferno hefur haft mikil áhrif á íslenska rithöfunda, allt frá Halldóri Laxness til Einars Más Guðmundssonar, sem sagði að engin bók hefði gagnast sér betur við ritun Engla alheimsins en Inferno. Halldór segir í endurminningabók sinni Ungur eg var frá því að í niðurlagi Inferno lesi Strindberg æskusögu Jóhannesar Jörgensen og heillist af kaþólsku kirkjunni og vilji ganga í klaustur. Síðan segir hann:

Inferno er dagsett í Lundi 25ta júní 1897. Tuttuguogtveim árum seinna barst bókin í hendur mér. Undarlegt að ekki skyldu líða nema fimm ár þángatil ég hitti mig sjálfan fyrir í sama áætlunarvagni, bæði í guðfræðilegum og landfræðilegum skilningi… og sjálfur skrifaði ég í raun réttri sömu sögu og Strindberg í Inferno, nema hún hét Vefarinn mikli.

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

1998

Þýðandi

Tungumál

Kápuhönnun

Form

Innbundin

Ástand

notuð