
Miklihvellur – Vísindalæsi #6
5.390 kr.Hvernig varð alheimurinn eiginlega til? Sennilega er þetta ein allra stærsta spurning vísindanna. Hér ferðast Stjörnu-Sævar um tíma og rúm, heimsækir misfurðulega fræðimenn og reynir með aðstoð töfratækja vísindanna (og óbilandi forvitni) að afhjúpa dýpstu leyndardóma alheimsins.
Miklihvellur er stútfull af frábærum fróðleik og fjörugum staðreyndum úr heimi vísindanna. Síðustu bækurnar í Vísindalæsisbókaflokknum, Hamfarir og Kúkur, piss og prump, voru báðar tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Teiknarinn Elías Rúni setur sem fyrr flókna hluti fram á skýran og skemmtilegan hátt.

Kúkur, piss og prump – Vísindalæsi #5
5.390 kr.Allt í náttúrunni er hluti af hringrás. Þú líka! Meltingin þín leikur nefnilega algjört lykilhlutverk þar. Heimurinn verður svo fallegur og forvitnilegur þegar við uppgötvum hvernig allt er tengt. Meira að segja kúkur, piss og prump verður bara … spennandi! Það sem mestu máli skiptir er að vera forvitin og þora að spyrja spurninga.
Kúkur, piss og prump er léttlestrarbók úr hinum vinsæla Vísindalæsisflokki Sævars Helga Bragasonar. Hér úir og grúir af frábærum fróðleik og fjörugum staðreyndum úr heimi vísindanna. Elías Rúni teiknar myndirnar í bókinni en hann hefur einstakt lag á að setja flókna hluti fram á skýran og skemmtilegan hátt.
