-
Beckomberga-geðsjúkrahúsið
990 kr.Þegar Jimmie Darling er vistaður á Beckomberga-geðsjúkrahúsinu fer dóttir hans, Jackie, að eyða sífellt meiri tíma þar, og eftir að móðirin fer úr landi verður sjúkrahúsið hennar heimur. Þar er Edvard Winterson læknir sem tekur með sér Jim og sérvalda sjúklinga á hverri nóttu í partí niður í bæ, hjúkrunarkonan Inger Vogel sem fetar hárfína línu reglu og eyðileggingar í samskiptum og hin raunamædda en aðlaðandi Sabina. Þar er líka Paul og ástin, hin raunverulega geðveiki.
Beckomberga-geðsjúkrahúsið er heillandi frásögn um baráttuna og drauminn við að halda fólki í birtunni, um vanmátt foreldra og barna, um ótta og dauðageig. Í þessari seiðmögnuðu og hrífandi skáldsögu verður sjúkrahúsið táknmynd samfélags sem í senn reynir að halda utan um þá veiku en líka halda þeim fjarri.
Sara Stridsberg er einn virtasti rithöfundur Svíþjóðar, handhafi Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2007 og hefur hlotið fjölda annarra viðurkenninga, ekki síst fyrir Beckomberga-geðsjúkrahúsið.
Tinna Ásgeirsdóttir þýddi.
-
-
-
Mannsævi
990 kr.Andreas Egger er fluttur kornabarn í lítið fjallaþorp í Ölpunum rétt eftir aldamótin 1900. Þar á hann illa vist en persónueinkenni þróast með honum; seigla, líkamlegur styrkur, hneigð til einveru. Egger verður maður verka fremur en orða. Ungur maður ræður hann sig í vinnu hjá verktökum sem hyggjast reisa kláf upp á fjallstind, nútíminn heldur innreið sína í þorpið og við það breytist öll tilvera íbúanna.
Mannsævi eftir Robert Seethaler er afar áhrifamikil bók um mannlega reisn og hæfni til að sigrast á erfiðum aðstæðum. Um leið og saga Eggers er sögð í meitluðum og áreynslulausum stíl, endurspeglar hún á margvíslegan hátt sögu tuttugustu aldarinnar – sögu einnar mannsævi.
Mannsævi var tilnefnd til Booker-verðlaunanna árið 2016.
Mannsævi er fimmta bók Roberts Seethaler, sem auk þess að vera rithöfundur starfar sem leikari og býr í Berlín.
-
Óþægileg ást
990 kr.Delia á von á móður sinni með lestinni til Rómar, en hú skilar sér ekki. Skömmu síðar finnst lík hennar í sjónum við baðstað þar sem fjölskyldan hafði stundum farið í sumarfrí.
Í tengslum við jarðarförina þarf Delia að takast á hendur ferð til æskustöðvanna og um leið á vit erfiðrar bernsku með tvístraðri fjölskyldu. En ekki síst þarf hún að svara knýjandi spurningu: Hver var eiginlega móðir hennar?
Í þessari fyrstu skáldsögu Elenu Ferrante fjallar hún um það efni sem einkennt hefur höfundarverk hennar síðan: flókin og margræð sambönd kvenna. Hér er mæðgnasamband í forgrunni, en einnig samskipti kynjanna, dulin og ódulin, og hvernig konur sem storka karlveldinu eiga erfitt uppdráttar.
Um þetta fjallar Elena Ferrante af þeirri stílgáfu, dýpt og innsæi sem lesendur þekkja af Napólí-fjórleik hennar, og gert hefur hana að einum vinsælasta rithöfundi samtímans. Eftir þessari bók var gerð vinsæl kvikmynd.
-
-
-
Náin kynni
1.290 kr.Þetta er hið dapurlegasta kvöld því ég er á förum og kem ekki aftur.
Jay ætlar að laumast óséður að heiman og yfirgefa konu sína Susan og litlu synina tvo. Kvöldið fyrir brottförina rifjar hann upp árin með fjölskyldunni. Hann gerir upp líf sitt af miskunnarleysi, dregur ekkert undan, hlífir engum, hvorki sér né sínum nánustu. Þetta er sársaukafullt uppgjör sem jafnframt er hugleiðing um ástina, vináttuna, hamingjuna og samskipti elskenda.
Náin kynni er fyrsta saga ensk-pakistanska höfundarins Hanifs Kureishi sem birtist á íslensku. Hann er talinn einn af merkustu höfundum Evrópu um þessar mundir en hann hefur jöfnum höndum skrifað leikrit, sögur og kvikmyndahandrit. Þekktasta verk hans er My Beautiful Laundrette sem hlaut tilnefningu til Óskarsverðlauna.
Bókin Náin kynni kom út í Englandi árið 1998 og vakti strax mikla úlfúð vegna óvæginna lýsinga Kureishis á samskiptum kynjanna.
Jón Karl Helgason þýddi.
-
-
-
Herra Palomar
1.290 kr.Þar sem hann er dálítið nærsýnn, utan við sig og innhverfur, líkist hann að því er virðist alls ekki þeirri manngerð sem vanalega er skilgreind sem góður athugandi. Samt sem áður hefur það oft komið fyrir hann að vissir hlutir – steinveggur, kuðungsskel, laufblað, teketill – ná athygli hans og líkt og biðji hann að rannsaka sig vel og lengi.
Ítalinn Italo Calvino (1923-1985) er í hópi frumlegustu rithöfunda tuttugustu aldar og er honum gjarnan skipað í hóp með skáldum á borð við Jorge Luis Borges, Georges Perec og Robert Walser. Skáldsagan Herra Palomar kom út árið 1983. Í sögunni slæst lesandinn í för með herra Palomar sem ver tíma sínum við að horfa á öldurnar og nakinn barm konunnar á ströndinni, hugsa um líkamsburði gíraffans og hugarheim hvítu górillunnar í dýragarðinum, girnast gæsafeitina í kjötbúðinni eða hlýða á samtal svartprastanna í garðinum. Sá sem hefur séð heiminn og himintunglin með augum herra Palomars mun aldrei verða samur á eftir.
Guðbjörn Sigurmundsson þýddi. -
-
-
-
-
-
-
Dauðinn og mörgæsin
1.290 kr.Áður en Viktor fór að hátta fékk hann sér te og hugsaði um dauðann. Það reyndist honum létt. Á meðan rölti mörgæsin Misha fram og til baka eftir myrkum ganginum og skellti sér við og við á lokaðar eldhúsdyrnar.
Sögusviðið er Úkraína eftir að Sovétríkin hafa liðast í sundur. Viktor, lánlaus og hæglátur rithöfundur, býr í lítilli blokkaríbúð ásamt þunglyndri mörgæs sem hann hefur tekið í fóstur af fjárvana dýragarði Kiev. Einn daginn er hann ráðinn í lausamennsku við eitt dagblað borgarinnar til að skrifa minningargreinar um mikilsháttar menn í samfélaginu sem blaðið vill hafa til taks þegar viðkomandi hrekkur upp af. Skyndilega virðist veröldin brosa við Viktori. En eftir því sem dagarnir líða verður heimilislíf hans stöðugt flóknara auk þess sem starf hans á blaðinu hefur ýmsar miður heppilegar afleiðingar í för með sér.
Í þessari bráðskemmtilegu og tregafullu skáldsögu fjallar Andrej Kúrkov um fjarstæðukenndan veruleika hversdagsfólks í löndum Austur-Evrópu eftir fall járntjaldsins. Sagan hefur verið þýdd á fjölda tungumála á síðustu misserum og alls staðar fengið rífandi dóma.
Áslaug Agnarsdóttir þýddi úr rússnesku.
-
-
Stríðsmenn Salamis
1.290 kr.Býsna ótrúleg saga, sagði hann svo með hlutlausum málrómi um leið og hann dró sígarettu upp úr hálfa pakkanum frá því um morguninn. En öll stríð eru full af ótrúlegum sögum, er það ekki?
Á síðustu dögum spænsku borgarastyrjaldarinnar stendur rithöfundurinn Sánchez Mazas ásamt fleiri föngum úr hópi falangista frammi fyrir aftökusveit lýðveldissinna. Um leið og vélbyssuskothríðin hefst notfærir hann sér ringulreiðina sem skapast og hleypur til skógar. Hermennirnir veita honum eftirför, einn þeirra finnur Mazas í felum, horfir í augu hans en gengur svo á braut.
Í Stríðsmönnum Salamis leitar spænski rithöfundurinn Javier Cercas svara við því hver óþekkti hermaðurinn var og hvers vegna hann þyrmdi lífi manns sem var alræmdasti hugmyndafræðingur falangista og átti eftir að verða ráðherra í fyrstu ríkisstjórn Francos. Mögnuð og margverðlaunuð bók um hlutskipti mannsins á tímum stríðsátaka, lyga og óvænts hetjuskapar.
Jón Hallur Stefánsson þýddi.