


Eldar kvikna
1.290 kr.Eftir að hafa sigrað í Hungurleikunum og skilað bæði sér og Peeta, félaga sínum úr Tólfta umdæmi, heim í heilu lagi ætti Katniss að vera himinlifandi. Hún flytur inn í Sigurþorp, þarf aldrei framar að óttast hungur og getur aftur farið á veiðar með æskuvininum Gale.
En ekkert er eins og það á að vera: Gale er gerbreyttur, Peeta snýr við henni baki og vaxandi ólga í Panem veldur áhyggjum. Í sigurvegaraferðinni verða Katniss og Peeta að kæfa allar uppreisnartilraunir í fæðingu – hvort sem þau kæra sig um það eða ekki – annars er miklu meira í húfi en nýfengið ríkidæmi og þægindi.
Eldar kvikna er önnur bókin í þríleik Suzanne Collins um Hungurleikana sem farið hefur sigurför um heiminn. Hér kemur hún lesendum á óvart hvað eftir annað svo engin leið er að leggja bókina frá sér fyrr en að lestri loknum.
Guðni Kolbeinsson þýddi.
- -28%

Sól rís á sláttudegi
Original price was: 6.490 kr..4.690 kr.Current price is: 4.690 kr..Þegar fimmtugustu Hungurleikarnir renna upp grípur um sig ótti í Panem. Í þetta sinn verða tvöfalt fleiri framlög tekin frá heimilum sínum til að taka þátt í leikunum. Haymitch Abernathy reynir að dvelja ekki of mikið við það heldur einbeitir sér að því sem skiptir hann mestu máli – að komast í gegnum daginn og vera með stúlkunni sem hann elskar.
Þegar nafn Haymitch er kallað upp hrynur veröldin. Hann er rifinn frá fjölskyldu sinni og unnustu og fluttur til þinghússins ásamt hinum þremur framlögunum úr tólfta umdæmi. Þegar leikar hefjast uppgötvar Haymitch að honum hefur verið stillt upp til að mistakast. En eitthvað innra með honum vill berjast … og láta þá baráttu óma langt út fyrir vígvöllinn.
