

12 konur
14.990 kr.12 konur er óvenjuleg bók á íslenzkum bókamarkaði og mun vekja óskipta athygli bókmenntafólks.
Sögurnar í 12 konum spegla mynd nútímakonunnar frá jafnmörgum hliðum, frá bernsku til fullorðinsára, bók um konur eftir konu.
12 konur er fyrsta bók Svövu Jakobsdóttur.


Miðnætursólborgin
19.990 kr.Fyrsta skáldsaga Jóns Gnarr.
„Þetta er okkar draumur, okkar einkamartröð og við getum gert allt sem okkur langar til!“
Miðnætursólborgin er óhugguleg og tæpitungulaus skáldsaga þrungin óslökkvandi losta og hamslausu ofbeldi. Hún segir frá Runólfi, foringja sjóræningjafélagsins, sem kemur til Miðnætursólborgarinnar að leita hefnda. Kynlíf og morð setja svip sinn á söguna alla. Og blóð sem hættir aldrei að renna . . Bók sem þú getur ekki lagt frá þér!
Í æsku var Jón Gnarr hjartveikur og taugaveiklaður drengur ofsóttur af jafnöldrum sínum sakir vanmáttar síns. En með lestri hollra ævintýrabóka öðlaðist hann þrá til sjálfsbjargar. Hann lærði af Konungi frumskóganna að sveifla sér kaðal af kaðli og af Hróa hetti og kátum köppum hans að skjóta ör af boga. Og með hjálp heilbrigðis- og aflkerfis Charles Atlas varð hann loks það sem allir heilbrigðir strákar þrá að verða: Útlagadrengurinn og Konungur ævintýranna!
Þetta er hans fyrsta skáldsaga.

Gangandi íkorni
9.990 kr.Draumsólir vekja mig – á þeim orðum hefst fyrsta skáldsaga Gyrðis Elíassonar. Svið hennar og persónur virðast í fyrstu hefðbundin: ungur drengur í afskekktri sveit hjá öldruðum hjónum, kaupstaðarferð, læknisvitjun, búverk. En lesandi finnur brátt einkennilega fjarlægð í þessu nána sambýli, eitthvað órætt bærist með drengnum. Dag einn sest hann við vaxdúklagt borðið og tekur að festa sýnir á brúnan maskínupappír: „Fyrst teikna ég flugvél og hákarl lónandi í gruggugu hafi undir. Síðan færi ég mig til á blaðinu. Ég leggst þungt á tréblýantinn og vanda mig. Allt í einu er orðinn til strákofi með garðskækli við, lítil lognvær tjörn, og íkorni.“ Fyrr en varir er lesandinn horfinn með íkornanum inn í óhugnanlegan heim. Uns draumsólir vekja hann . . .
Gyrðir Elíasson hefur áður sent frá sér fimm ljóðabækur og unnið sér sess sem eitt hugmyndaríkasta ljóðskáld yngri kynslóðarinnar.



- -25%

Aðalskipulag Reykjavíkur 1962-83
Original price was: 19.990 kr..14.990 kr.Current price is: 14.990 kr..
