
Íslensku tröllabörnin
4.990 kr.Tröll hafa byggt Ísland frá því löngu áður en menn settust hér að. Samt vitum við furðu lítið um þau enda hafa tröllin lært að oft er betra að láta lítið fyrir sér fara. Í þessari bráðskemmtilegu bók er hulunni svipt af lífsháttum tröllanna með sérstakri áherslu á litla tröllafólkið – sem er samt ekkert svo lítið! Hvernig alast tröllabörnin upp, hvað borða þau og af hverju sofa tröllabörn þegar þau eiga að vera að læra? Og hvað þykir þeim flott og hvernig tolla þau í tískunni? Eða hvað er eiginlega í gangi á milli trölla og hrafna? Loksins fáum við svör við þessum áleitnu spurningum og margt kemur á óvart.
Í þessari myndríku bók vekur Brian Pilkington magnaðan hulduheim til lífsins á sinn tröllskemmtilega og nýstárlega hátt. Þjóðsögurnar okkar eru notaðar sem bakgrunnur en miklu af nýjum og óvæntum upplýsingum bætt við. Og þar sem þeim sleppir tekur við óviðjafnanleg sköpunargleði og innsæi þessa ástsæla listamanns.
Iceland’s Troll Children
4.990 kr.Trolls have shaped Iceland since long before humans settled here. Yet we know surprisingly little about them, for trolls have learned that it is often wiser to keep a low profile. In this wonderfully entertaining book, the veil is lifted on the lives of trolls, with special focus on the little troll-folk (who aren’t actually that little at all!). How are troll children raised, what do they eat, an why do they fall asleep when they’re supposed to be learning? How do they keep up with fashion and what exactly is going on between trolls and ravens? At last, we get answers to these pressing questions—and many surprises along the way.
In this richly illustrated book, Brian Pilkington brings a magical hidden world to life in his uniquely amusing and innovative way. The Icelandic folk legends serve as a backdrop, but a wealth of new and unexpected information is added. And where that leaves off, the unmatched creativity and insight of this beloved artist take over.
Mér er um og ó!
4.890 kr.Í bók þessari eru 15 íslenskar þjóðsögur sem Solveig hefur valið, umritað og myndskreytt. Sögurnar skarta allar áberandi kvenpersónum, hvort sem um er að ræða mennskar konur, tröllskessur, huldukonur, kvendrauga o.þ.h. Sumar sögurnar eru vel þekktar en aðrar fáheyrðari.

Mér er um og ó!
4.890 kr.Í bók þessari eru 15 íslenskar þjóðsögur sem Solveig hefur valið, umritað og myndskreytt. Sögurnar skarta allar áberandi kvenpersónum, hvort sem um er að ræða mennskar konur, tröllskessur, huldukonur, kvendrauga o.þ.h. Sumar sögurnar eru vel þekktar en aðrar fáheyrðari.
