• Spegill þjóðar

    Spegill þjóðar

    Gunnar er enda einn áhrifamesti ljósmyndari okkar og margar fréttamynda hans hafa mótað hugmyndir okkar um sögu lands og þjóðar. Ferillinn spannar hálfa öld, frá því hann hóf störf á Tímanum 16 ára árið 1966. Síðar var hann á Vísi, DV og Fréttablaðinu. Og fjölmörg augnablikin sem Gunnar festi á filmu eru greypt í þjóðarsálina.
    Gunnar velur hér á annað hundrað minnisstæðustu mynda sinna og Sigmundur Ernir Rúnarsson skráir söguna á bakvið hverja þeirra – úr verður einstakt og áhrifamikið sjónarspil; fréttaviðburðir, stjórnmál, íþróttir, náttúra, listir og skemmtanir, innlend og útlend stórmenni og okkar minnstu bræður og systur – allt á þetta sína fulltrúa í myndasafni GVA.
    14.690 kr.
    Setja í körfu
  • Spessi: Tóm

    Spessi: Tóm

    Tóm er ný ljósmyndabók eftir Sigurþór „Spessa“ Hallbjörnsson. Spessi er einn af mikilvægustu sjónrænu annálahöfundum Íslands. Bókin inniheldur um 100 myndir teknar í Öræfunum og formála eftir Ófeig Sigurðsson, rithöfund.

    13.490 kr.
    Setja í körfu
  • Kína frá fyrri öld - China Before

    Kína frá fyrri öld – China Before

    Unnur Guðjónsdóttir rak um árabil ferðaskrifstofu sem sérhæfði sig í ferðum til Kína. Hún tók snemma ástfóstri við þetta stóra og mikla land, með „teljandi“ íbúum, og árunum 1983 og 1992 tók hún þar mikið magn mynda, sem finna má í þessari einstöku bók, sem sýnir okkur Kína frá síðustu öld, en margt hefur nú breyst þar og því nauðsynlegt að varðveita gamla tímann eins og kostur er.

    8.490 kr.
    Setja í körfu
  • Óli K.

    Óli K.

    Þegar Óli K. hóf störf á Morgunblaðinu árið 1947 var hann fyrsti fastráðni blaðaljósmyndarinn á Íslandi. Starfsævin spannaði um hálfa öld og á þeim tíma markaði hann sér sess sem mikilvægur þátttakandi á sviði íslenskrar menningar. Augnablik Íslandssögunnar urðu að sýnilegum minjum í myndum hans. Hann tók utan um andrúm og tilfinningar og gaf þeim form, gerði karla og konur að leikendum á sviði tímans var staddur þar sem sagan gerðist. Hér birtist úrval af verkum Óla K., bæði víðkunnar myndir sem óþekktar. Um leið er saga hans sögð ítarlegar en áður hefur verið gert, fjallað um uppvöxtinn í Reykjavík í skugga sviplegs fráfalls föður hans, námsárin í Bandaríkjunum og síðan þrotlausa elju við að ljósmynda lífið í landinu.

    14.990 kr.
    Setja í körfu
  • -19% Útlit loptsins

    Útlit loptsins

    Útlit loptsins er í senn myndlistarverk í 366 hlutum, athugun á veðri tveggja ára á ólíkum öldum og dagbók höfundarins. Einar Falur var staðarlistamaður í Vatnasafni í Stykkishólmi þegar hann byrjaði að skrá í ljósmynd veðrið á hádegi dag hvern, hvar sem hann var staddur. Jafnframt bar hann opinbera veðurskráningu þess staðs saman við veðurathugun Árna Thorlaciusar kaupmanns í Stykkishólmi 170 árum fyrr sem var fyrstur Íslendinga til að skrásetja veður með markvissum hætti. Jón Kalman Stefánsson ritar formála og Einar Falur inngang. Einnig er birt ljóð eftir Anne Carson um veðrið í Stykkishólmi. Sigrún Sigvaldadóttir hannar ásamt höfundi.

    Original price was: 15.990 kr..Current price is: 12.990 kr..
    Setja í körfu