Upplýsingar
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 2006 |
| Tungumál | |
| Þýðandi | |
| Kápuhönnun | |
| Blaðsíður | 327 |
| Form | Innbundin |
| Ástand | notuð |
1.990 kr.
Það verður örlagaríkt fyrir Earnshawfjölskylduna þegar húsbóndinn hirðir lítinn skítugan strákling, sem enginn vill eiga, upp af götu sinni í Liverpool og fer með hann heim til Wuthering Heights. Drengurinn fær nafnið Heathcliff, og í uppvextinum verða þau Cathy Earnshaw óaðskiljanleg, þvælast saman um heiðina, frjáls eins og villibörn. En þegar hann vill eignast hana fyrir konu hefur hann, ættlaus og eignalaus, ekki neitt að bjóða dóttur óðalsbóndans. Hann hverfur brott og hún giftist glæsilega herragarðseigandanum neðar í dalnum. En Cathy gleymir ekki Heathcliff og þegar hann snýr aftur, vellauðugur maður, ná ástríðurnar og takmarkalaus hefnigirni hans smám saman yfirhöndinni.
Wuthering Heights er meðal frægustu skáldsagna enskra bókmennta og kemur enn út í mörgum útgáfum á ári hverju þótt hún sé að verða 160 ára. Frásagnarháttur hennar þykir enn nýstárlegur og persónurnar og örlög þeirra verða lesendum ógleymanleg. Þó var höfundurinn tæplega þrítug prestsdóttir og piparmey sem fátt hafði séð og ekkert reynt – að því er séð verður af þeim hamslausu ástríðum sem saga hennar segir frá.
Emily Brontë fæddist 1818 í Yorkshire, Norður-Englandi, næstyngst sex systkina. Móður sína missti hún þriggja ára og tvær systur fáum árum síðar. Systkinin fjögur sem eftir lifðu voru ákaflega samrýnd og bjuggu sér til heilan heim í orðum og myndum þar sem íbúarnir lentu í æsilegustu ævintýrum. Systurnar Charlotte, Emily og Anne gáfu út ljóðasafn saman undir dulnefnunum Currer, Ellis og Acton Bell árið 1846, og árið eftir kom Wuthering Heights út undir dulnefni Emily, Ellis Bell. Hún lifði það að sjá söguna sína á prenti og vekja bæði athygli og hneykslun, en ári síðar, 1848, lést hún úr berklum.
Þetta er ný þýðing á sögunni eftir Silju Aðalsteinsdóttur, henni fylgir eftirmáli þýðanda.
Á lager
| Höfundur | |
|---|---|
| Útgefandi | |
| Útgáfuár | 2006 |
| Tungumál | |
| Þýðandi | |
| Kápuhönnun | |
| Blaðsíður | 327 |
| Form | Innbundin |
| Ástand | notuð |