Availability: Á lager

Drottningin á Júpíter

SKU: SKLD0JUP

990 kr.

Drottningin á Júpíter segir frá Elenóru Margréti Lísudóttur og helstu áhrifavöldunum í lífi hennar: móðurinni Lísu sem dó úr depurð, sirkússtjóranum Lilla Löve, hinni dularfullu Mónu og lækninum í Vesturbænum, Benedikt Schneider.

Í ljóðrænni frásögn á milli draums og veruleika ferðast Elenóra um landið (og jafnvel sólkerfið) með sirkusnum sínum. Þar fyrir utan hangir hún á Bravó á Laugavegi með vini sínum Starkaði Krumma Sirkússyni, krummanum sem vaktar barinn og röflar í kráargestum.

Drottningin á Júpíter er þriðja bók Júlíu Margrétar Einarsdóttur en áður hefur hún sent frá sér smásöguna Grandagallerí: Skýin á milli okkar árið 2016 og ljóðabókina Jarðarberjatungl 2018.

„Þrátt fyrir að frásögnin sé öll lævi blandin nær Júlía með hárfínum hætti að láta sögusvið og stemningu verða ljóslifandi huga lesandans, og skapa andrúmsloft sem sogar hann til sín…“
– Morgunblaðið

„Höfundur heldur fast og vel um alla þræði, beitir tímaflakki og endurtekningum listavel, nánast eins og í módernísku ljóði (…) það er spennandi að dveljast á þessum óljósu mörkum, við missum aldrei þræðina í þessari vandlega skrifuðu óreiðu.“
– Víðsjá

„Ég man satt að segja ekki eftir betri fyrstu skáldsögu (…) hvílík sundlandi snilld.“
– Hrafn Jökulsson

Á lager

Upplýsingar

Höfundur

Útgefandi

Útgáfuár

2018

Kápuhönnun

Form

Kilja

Ástand

notuð