• Enn er morgunn

    Enn er morgunn

    Í góulok 1936 kemur til Reykjavíkur ungur þýskur tónlistarmaður að nafni Jóhannes Kohlhaas. Hann er af gyðingaættum og hefur á ævintýralegan hátt hrakist undan nasistum, sem fara mikinn í heimalandi hans. Menningarlíf hins unga höfuðstaðar nýtur hæfileika Jóhannesar, hann aðlagast fljótt og finnur ástina.

    En það eru viðsjárverðir tímar, styrjöld að brjótast út í Evrópu og jafnvel hér á þessu litla og friðsæla landi, þar sem Knudsensfjölskyldan virðist hafa alla þræði í hendi sér, eru útsendarar erlendra ríkja að störfum. Það er fylgst með fólki og skýrslur skrifaðar, flokkað, stimplað og skráð. Og þann 10. maí 1940 hernema Bretar Ísland…

    Enn er morgunn er söguleg skáldsaga eftir Böðvar Guðmundsson, hinn ástsæla höfund bókanna um ferðir Íslendinga til Vesturheims á 19. öld – Híbýli vindanna og Lífsins tré. Líkt og þar er umfjöllunarefni þessarar bókar ólíkir heimar sem mætast, þótt sögutíminn og sögusviðið sé annað. Hér er í forgrunni kraftmikil örlagasaga manns og konu sem elska hvort annað, meðan allur hinn siðmenntaði heimur fer á annan endann. Undir niðri krauma áleitnar spurningar um val einstaklingsins og ábyrgð, um tryggð og fjölskyldubönd, ætt og uppruna, þjóðerni og kynþátt; spurningar um stríð eða frið, líf eða dauða. Mögnuð lesning og öllum holl, ekki síst á tímum þegar svo freistandi er að fella þunga dóma.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Ariasman

    Ariasman

    Ariasman – frásaga af hvalföngurum eftir Tapio Koivukari er söguleg skáldsaga um Spánverjavígin þegar 31 baskneskur skipbrotsmaður var veginn af vestfirskum bændum haustið 1615 undir forystu Ara Magnússonar, sýslumanns í Ögri.

    Tveimur árum áður en þessir atburðir urðu stendur ung stúlka, Kristrún að nafni, undir Kaldbakshorni og skolar ull. Hún sér segl við sjóndeildarhring, ókunn segl og heimamenn leggja á flótta undan útlendum sjóreyfurum, að því er þeir halda. En komumenn eru friðsamir hvalfangarar og góður kunningsskapur myndast á milli þeirra og heimamanna fyrir milligöngu sóknarprestsins. Sjálfur Vestfjarðakóngurinn, Ari í Ögri, leggur blessun sína yfir veru þeirra á Ströndum.

    Saga Spánverjavíganna og aðdraganda þeirra er hér rakin frá sjónarhorni bæði Íslendinga og Baska. Martin de Villafranca er ungur og metnaðarfullur maður í sinni fyrstu för sem hvalveiðikapteinn örlagasumarið 1615. Hann ávinnur sér brátt traust og virðingu áhafnarinnar en samskiptin við heimamenn ganga brösuglegar. Um borð er ungur piltur, aðstoðarbeykirinn Gartzia de Aranburu, en leiðir hans og Kristrúnar liggja saman.

    Skömmu fyrir brottför veiðimannanna úr Reykjarfirði um haustið skellur á mikið óveður og þá hefst atburðarás sem endar með þeim ósköpum sem enn eru talin eitt mesta óhæfuverk Íslandssögunnar.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Ást í meinum

    Ást í meinum

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Hvernig ég kynntist fiskunum

    Hvernig ég kynntist fiskunum

    Hvernig ég kynntist fiskunum eftir tékkneska rithöfundinn Ota Pavel (1930–1973) er rómað safn samtengdra frásagna sem byggja á bernskuminningum höfundar.

    Verkið leikur á mörkum skáldsagna- og smásagnagerðar og lýsir með ljúfsárum hætti veröld sem var í sveitahéruðum Tékkóslóvakíu, áður en síðari heimsstyrjöldin skall á og landið var hernumið af Þjóðverjum.

    Gyrðir Elíasson þýddi.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Árleysi alda

    Árleysi alda

    1.490 kr.
    Setja í körfu