

Fávitinn (seinna bindi)
1.290 kr.Maðurinn í hettusláinu var ungur, tuttugu og sex eða tuttugu og sjö ára, rúmlega meðalmaður á hæð, með afar ljóst og mikið hár, kinnfiskasoginn með þunnt, niðurmjótt og hérumbil hvítt skegg. Augu hans voru stór, blá og íhugul, í augnaráði hans var eitthvað blíðlegt en um leið þungt, eitthvað af þeim einkennilega svip sem nægir til að giska á strax við fyrstu sýn að viðkomandi sé haldinn niðurfallssýki…
Á hlákublautum morgni í nóvember kemur Myshkin fursti til Pétursborgar, inn í iðandi atburðarás ásta, svika, undirferla og glæpa. Hann er einlægur og flekklaus maður, og Dostojevskí sýnir hér hvað gerist þegar slík persóna kemur inn í samfélag breyskra manna.
Fávitinn sem kom út í Rússlandi árið 1868 er með frægustu skáldsögum heimsbókmenntanna, ástríðufull og spennandi. Ingibjörg Haraldsdóttir þýddi bókina úr rússnesku og hlaut fyrir þá þýðingu Menningarverðlaun DV fyrir árið 1986.


Engill, pípuhattur og jarðarber
990 kr.Þetta er saga um pilt og stúlku samtímans, ást þeirra, leiki og hvunndagshamingju í sólríku evrópsku þorpi. En skammt undan lúrir skugginn, kannski í leynum hugans eða djúpi draumsins – og kannski á hann aðrar ættir.
Sumir munu kalla þetta ástarsögu, aðrir draugasögu, enn aðrir kenna hana við agaðan súrrealisma. Þetta er ljúf bók, fyndin og furðuleg, ærslafull og sorgleg.
Sjón hefur áður gefið út skáldsöguna Stálnótt og er löngu kunnur fyrir ljóð sín.
