-
Byggingin
4.990 kr.Jóhamar er fullkominn, ég tel þetta besta Jóhamar ársins. Að horfa á Jóhamar gerir mann ölvaðan. Jóhamar er yfirþyrmandi og einstök reynsla. Jóhamar furðulegi er Jóhamar fyrir alla fjölskylduna enda er hér undra-Jóhamar á ferðinni. Jóhamar er hrífandi og umfram allt töfrandi. Jóhamar er pottþétt skemmtun. Þetta er besti Jóhamar til þessa. Það glansar af Jóhamri. Hér fer allt saman sem prýtt getur góðan Jóhamar. Jóhamar er svo spennandi eftir hlé að annað eins hefur ekki sést lengi. Það er ekki að sökum að spyrja ef Jóhamar kemur nálægt Jóhamri, þá verður útkoman stórkostleg. Það borgar sig að hafa góðar neglur þegar lagt er í Jóhamar. Jóhamar fer á kostum í þessum Jóhamri og er jafnvel enn betri en lögreglumaðurinn Jóhamar í Jóhamri. Jóhamar er bráðskarpur, geysifyndinn og gamansamur. Hákarlinn Jóhamar er kominn aftur til að drepa og nú er hann heldur betur persónulegur. Jóhamar er alltaf ferskur og nýr. Hver kannast ekki við Jóhamar í djörfum dansi, hnetubrjótinn Jóhamar, Jóhamar að tjaldabaki, Jóhamar stórkarl, draumalandið Jóhamar, Jóhameríku, sjúkraliðann Jóhamar, Jóhamar síðasta keisarann, Jóhamar á vaktinni, Jóhamar í stuði, Jóhamar týnda drenginn, skothylkið Jóhamar…
Smekkleysa 012
-
Ferðalag um Ísland – Úr myrkri til birtu
9.990 kr.Erin Boggs og Einar Örn Benediktsson hafa unnið saman að margþættri skynreisu sem kannar Ísland í gegnum list og ljóð og tónlist frá Kaktus Einarssyni.
Í gegnum þessa upplifun verður áhorfendum sökkt í leyndardómsfulla fegurð íslensks umhverfis og menningar.
Bókin er á ensku og íslensku. Hún hefur að geyma 50 myndir og ljóð.
-
Kompa
1.290 kr.Fræðimaður, ung kona, verður fyrir smávægilegri truflun inni á handritasafni við rannsókn á 365 ára gamalli dagbók. Afleiðingarnar eru afdrifaríkar en koma þó ekki í ljós fyrir en sex árum síðar þegar konan áttar sig á að rannsóknartilgáta hennar hefur í öll þessi ár verið byggð á röngum forsendum, og að ritgerðin, heilar 600 síður, er að öllum líkindum þvættingur frá upphafi til enda.
Í örvæntingu sinni grípur hún til þess eina ráðs sem virðist geta bjargað henni úr skelfilegum aðstæðum, en verknaðurinn eykur bara á hremmingar hennar og áfallið í kjölfar þessa alls verður til þess að gömul veikindi taka sig upp. Buguð og í fræðilegri sjálfheldu frestar hún námslokum og fylgir eiginmanni sínum heim til Íslands.
Þar burðast hún með leyndarmál sitt og laskaða sjálfsmynd gagnvart fjölskyldu og vinum, og tekst á við afleiðingar veikinda sinna, ofskynjanir, sem virðast þó að lokum ætla að opna henni leið út úr ógöngunum.
Kompa er skáldsaga um uppruna sögulegra heimilda og tilviljunarkennda varðveislu þeirra.