
Larfur Lauks: Lifandi og deyjandi í Reykjavík
4.990 kr.Brúnt slabb, öskrandi rok, syndaaflausn í eftirpartýi, geislavirk kvennfyrirlitning, æla í pítsukassa, mótsagnir í dós, adrenalín-perrar og 18 ára heimdellingur með fortnite-vandamál. Brotinn kjálki eftir rafhlaupahjólaslys, tæpur gaur með pit viper gleraugu, lifandi á fornri frægð og mamma þín er að chilla með fólki sem þú þekkir ekki.
Í slysabarni íslensku þjóðarinnar, Reykjavík, leynast tuttugu-og-eitthvað ára stefnuleysingjar á víð og dreif um göturnar. Þeir sveiflast um á milli láglaunastarfa, skrá sig í og úr námi, allt gert á ísland.is í hálfkæringi á djamminu. Mjólkin súrnuð, atvinnuleysisbæturnar búnar, morgundagurinn er ekkert nema svikull vinur.
