• Refur og Björn: Í feluleik

    Refur og Björn: Í feluleik

    Ref og Birni finnst gaman í feluleik en Björn er bara alls ekki góður í að fela sig þó að hann haldi annað. Refur vinnur því alltaf. Eins og gefur að skilja langar Björn mikið til að hafa betur í leiknum og í þetta skiptið er hann sannfærður um að þaðmuni takast.

    4.390 kr.
    Setja í körfu
  • Ferðataskan

    Ferðataskan

    Dag einn kemur skrýtið dýr sem dregur á eftir sér stóra ferðatösku.
    – Af hverju er það hér?
    – Hvaðan kemur það?
    – Hvað er í ferðatöskunni?

    Saga full af hlýju og von sem vekur lesendur til umhugsunar um framkomu við þá sem eru öðruvísi og langt að komnir.

    4.390 kr.
    Setja í körfu
  • Draugar banka ekki á dyr

    Draugar banka ekki á dyr

    Bjössi og Bifur eru bestu vinir og alltaf saman. Eitt frostkalt síðdegi tilkynnir Bjössi að Andarsteggur sé væntanlegur í heimsókn. Bifur vill alls ekki fá neina gesti og tekur því til sinna ráða til að fæla þá á braut. Þegar líður á kvöldið á Bifur þó eftir að læra að óvæntur félagskapur getur verið mjög ánægjulegur.

    4.390 kr.
    Setja í körfu
  • Það sem pabbi sagði mér

    Það sem pabbi sagði mér

    Ástvaldur horfir á svölurnar á himninum.
    – Þær eru á leið hinum megin á hnöttinn, útskýrir pabbi.
    – Get ég farið eins langt og þær þegar ég verð stór? spyr Ástvaldur.
    – Jafnlangt og enn þá lengra, svarar pabbi.

    Og í huganum leggur Ástvaldur af stað út í hinn stóra heim þar sem húsin eru ógnarhá og margt getur leynst í skóginum. Á ferðalaginu stendur pabbi sem klettur við hlið hans og gefur góð ráð þegar á móti blæs.

    3.890 kr.
    Setja í körfu
  • Spakur spennikló og slóttugi Sámur: Skuggaskóli
  • Pómeló líður vel undir biðukollunni

    Pómeló líður vel undir biðukollunni

    Pómeló er lítill fíll með óvenjulangan rana og býr undir biðukollu. Þó að langbest sé að vera heima er nauðsynlegt að kanna nánasta umhverfi. Raninn hans langi vil þá oft valda vandræðum en getur líka komið að góðum notum. Á skemmtilegu dögunum er gaman að vera til en nái hræðslan tökum á Pómeló er margt í umhverfinu sem getur vakið ótta. Þrjár sögur í fallega myndskreyttri bók.

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • Þjófótta kisan
  • Spakur spennikló og Slóttugi Sámur
  • Búningadagurinn mikli

    Búningadagurinn mikli

    Hvað eru fílaffi, flóðingói og páfgæs? Það er fallegur sunnudagsmorgunn í dýragarðinum er fjörlegir tónar raska ró Alfreðs og Boga Péturs broddgaltar. Í ljós kemur að dýrin hafa klætt sig í gervi þess dýrs sem þau langar mest til að vera svo að í dýragarðinum er nú full af nýjum og stórfurðulegum dýrum. Félagarnir þurfa nú að gera upp á hvaða dýr leynist bak við búninganna. Hér koma fyrir sömu persónur og í bókinni Tannburstunardagurinn mikli.

    3.190 kr.
    Setja í körfu
  • Hvernig er koss á litinn?

    Hvernig er koss á litinn?

    Lillaló elskar að mála. Hún málar rauða maríubjöllu, bláan himin og gula banana en koss hefur hún aldei málað. Hvernig er koss á litinn? Með penslum og pappír rannsakar Lillaló málið. Er kossinn rauður eins og tómatsósa, grænn líkt og krókódíll eða bleikur eins og uppáhaldskökurnar hennar?

    2.990 kr.
    Setja í körfu
  • Lillaló, Leiðist þér?

    Lillaló, Leiðist þér?

    Lillaló er orðin stór, svo stór að hún er byrjuð í skóla. Hún veit nákvæmlega hvað hún á að gera alla daga vikunnar nema á sunnudögum. Á sunnudögum er ekkert í dagbókinni, enginn myndlistartími, engin bandíæfing. Engin bókasafnsferð. Aðeins tími til að láta sér leiðast. En hvað getur Lillaló eiginlega gert svo henni leiðist ekki?

    3.190 kr.
    Setja í körfu
  • Ástin mín

    Ástin mín

    3.390 kr.
    Setja í körfu
  • Spakur spennikló og slóttugi Sámur: Út í bláinn
  • Pómeló vex úr grasi

    Pómeló vex úr grasi

    Pómeló er lítill fíll með óvenjulangan rana sem uppgötvar að hann hefur stækkað. Breytingin færir honum gleði og kraft en vekur líka margar spurningar. Hvað ef hann vex ekki allur jafnt og getur hann orðið of STÓR? Sjálfstætt framhald af bókinni Pómeó líður vel undir biðukollunni.

    3.390 kr.
    Setja í körfu
  • Stund hanans

    Stund hanans

    Dag einn kemur Pétur heim með pappakassa sem í reynist vera hani. Hænurnar á bænum sjá ekki sólina fyrir honum en Brandur skilur ekkert í öllu fjaðrafokinu enda aldrei, ekki í eitt sekúndubrot, þurft á hana að halda. Lífið á bænum tekur miklum stakkaskiptum. Brandur fær ekki lengur að stríða hænunum og þarf að þola stanslaust hanagal alla daga.

    Þessi tímalausa bók eftir verðlaunahöfundinn Sven Nordqvist er fullkomin fyrir börn og fullorðna til að njóta saman.

    3.990 kr.
    Setja í körfu
  • Jólagestir hjá Pétri

    Jólagestir hjá Pétri

    Á litlum bæ í sænskri sveit er runninn upp Þorláksmessudagur og í nógu að snúast. Pétur á eftir að kaupa inn fyrir jólin en fyrst þarf að moka snjó. Síðan á eftir að höggva jólatréð, skúra eldhúsgólfið, baka piparkökur og finna jólaskrautið. En hvaða ansans vandræði eru þetta? Pétur verður fyrir slysi á versta tíma og kötturinn Brandur sér ekki fram á annað en gulrætur, kartöflur og sild í jólamatinn. Allt stefnir í heldur gleðisnauð jól hjá þeim félögum.

    4.390 kr.
    Setja í körfu