• Spessi: Tóm

    Spessi: Tóm

    Tóm er ný ljósmyndabók eftir Sigurþór „Spessa“ Hallbjörnsson. Spessi er einn af mikilvægustu sjónrænu annálahöfundum Íslands. Bókin inniheldur um 100 myndir teknar í Öræfunum og formála eftir Ófeig Sigurðsson, rithöfund.

    13.490 kr.
    Setja í körfu
  • Steinunn Þórarinsdóttir: Maður

    Steinunn Þórarinsdóttir: Maður

    Nýtt og veglegt yfirlitsrit um list Steinunnar Þórarinsdóttur. Bókin inniheldur myndir af öllum helstu verkum Steinunnar, auk þess sem bæði innlendir og erlendir sérfræðingar fjalla um listferil hennar og verk frá fjölbreyttum sjónarhornum. Snæfríð Þorsteins hannaði. Bókin inniheldur um 250 myndir af verkum Steinunnar, auk annarra mynda frá ferli hennar.

    15.990 kr.
    Setja í körfu
  • Guðrún Bergsdóttir - Hugarheimar / Inner Worlds

    Guðrún Bergsdóttir – Hugarheimar / Inner Worlds

    Hugarheimar er bók um útsaumslistakonuna Guðrúnu Bergsdóttur. Guðrún var fædd árið 1970 og lést í janúar 2024. Hún var fædd með fötlun sem setti mark sitt á líf hennar en hindraði hana þó ekki í að gera einstök útsaumslistaverk þar sem flæða saman litir og form, sprottin úr hennar hugarheimi. Bókin inniheldur myndir af verkum Guðrúnar, auk greina um verk hennar og feril eftir Aðalstein Ingólfsson, Margréti M. Norðdahl og Eggert Pétursson. Harpa Björnsdóttir ritstýrði og Ármann Agnarsson hannaði.

    8.990 kr.
    Setja í körfu
  • -19% Útlit loptsins

    Útlit loptsins

    Útlit loptsins er í senn myndlistarverk í 366 hlutum, athugun á veðri tveggja ára á ólíkum öldum og dagbók höfundarins. Einar Falur var staðarlistamaður í Vatnasafni í Stykkishólmi þegar hann byrjaði að skrá í ljósmynd veðrið á hádegi dag hvern, hvar sem hann var staddur. Jafnframt bar hann opinbera veðurskráningu þess staðs saman við veðurathugun Árna Thorlaciusar kaupmanns í Stykkishólmi 170 árum fyrr sem var fyrstur Íslendinga til að skrásetja veður með markvissum hætti. Jón Kalman Stefánsson ritar formála og Einar Falur inngang. Einnig er birt ljóð eftir Anne Carson um veðrið í Stykkishólmi. Sigrún Sigvaldadóttir hannar ásamt höfundi.

    Original price was: 15.990 kr..Current price is: 12.990 kr..
    Setja í körfu
  • Eggert Pétursson

    Eggert Pétursson

    Bókin um Eggert Pétursson inniheldur 109 myndir af málverkum listamannsins og greinar um verk hans, ævi og feril.

    15.490 kr.
    Setja í körfu