



Þjóðhátíðarrolla
2.990 kr.Þetta ritgerðasafn, sem helgað er þjóðhátíð Íslendinga 1974, hefst á nafntogaðri ræðu höfundar á Þingvöllum 28. júlí. Á eftir fara ritgerðir um forna bókmenntasögu Íslendinga; Forneskjutaut, útfrá átrúnaði í fornöld og siðaskiptunum árið 1000, og Hvað var á undan íslendingasögum?, sem rekur á nýjan hátt samhengi fornbókmenntanna og skilning vorn á þeim gegnum Íslandssöguna. Báðar greinarnar eru stórmerkt framlag til þeirrar lífrænu sögulegu og fagurfræðilegu umræðu um fornbókmenntirnar, sem Halldór Laxness hefir lengi haldið uppi. Það eru einkum þessar greinar ásamt mörgum mannlýsingum, sem skipa Þjóðhátíðarrollu á bekk með beztu ritgerðasöfnum höfundar.
K. K.




Guðsgjafaþula
2.990 kr.Guðsgjafaþula er rituð í endurminningastíl með tilstyrk „sögumanns“, greinargerð um liðið tímabil. Þessi sögumaður er rithöfundur, en verzlar líka með fugla. Hann kemur fyrst við í frásögn sinni árið 1920 í Kaupmannahöfn, þarnæst 1938 í norðlenzk-vestfirzku síldarplássi, Djúpvík. Og loks í London eftir síðara stríð. Þetta er hið mikla „tímabil norðurlandssíldarinnar“. Aðalsöguhetjan, Bersi Hjálmarsson, Íslandsbersi öðru nafni, er síldarspekúlant af þeirri tegund, sem uppi var í þann tíð. Reyndar er þessi síldarkaupmaður varla neinnar tegundar, hann er náttúrufyrirbæri og sögulegt undur. Hann er sömuleiðis einhver skemmtilegasta persóna, sem komið hefur fyrir í sögum Halldórs Laxness.
Síldin er alls staðar í baksýn, dularfull, óútreiknanleg, einnig þegar hún er komin á land. Henni fylgir rökleysi í lífi manna og athöfnum. Guðsgjafaþula er mikill aldarspegill. Siöalögmál, trú, pólitík, einkum verklýöspólitík þessa tíma, hættir manna, hugmyndir og búnaður, allt birtist í óvæntu og stundum miskunnarlausu ljósi. Samt er frásögn sögumanns blandin mikilli mildi. Hann er gestur í heimi athafnanna. Og það er Bersi Hjálmarsson reyndar líka. Hann er a.m.k. af tveimur heimum. En um það fjallar sagan.
![Klukkan kallar [Hverjum klukkan glymur]](https://skalda.is/wp-content/uploads/2026/02/Klukkan-kallar-450x725.jpg)



