-
Sæluvíma
3.590 kr.Enski mannfræðingurinn Andrew Bankson er einangraður á vettvangi við rannsóknir á ættbálki sem býr við Sepik-fljótið á Nýju-Gíneu og rannsóknir hans ganga illa. Úrkula vonar er hann að því kominn að stytta sér aldur þegar hann rekst á hina frægu og hrífandi Nell Stone og kaldhæðinn eiginmann hennar, Fen, en bæði eru þau mannfræðingar. Úr verður áhugavert samstarf og ástríðufullt samband en ekki líður á löngu uns afbrýðisemi og græðgi stefnir öllu í voða.
Sæluvíma (Euphoria) er margverðlaunuð skáldsaga eftir bandaríska rithöfundinn Lily King. Hún byggir á raunverulegum atburðum í lífi bandaríska mannfræðingsins Margaretar Mead þegar hún var við störf á Nýju-Gíneu árið 1933 ásamt þáverandi eiginmanni sínum, Reo Fortune, og Gregory Bateson sem hún átti eftir að giftast síðar.
Sæluvíma sló í gegn í Bandaríkjunum þegar hún kom út árið 2014 og fyrir hana hlaut höfundurinn Kirkus-skáldskaparverðlaunin, Bókmenntaverðlaun Nýja-Englands og Bandarísku gagnrýnendaverðlaunin, auk þess sem hún var valin ein af tíu bestu bókum ársins af The New York Times Book Review, tímaritinu TIME og Amazon. Sæluvíma hefur komið út í 15 löndum og er kvikmynd í bígerð.
Uggi Jónsson þýddi.
-
Að borða Búdda
3.890 kr.Þegar Rauði her Maos Zedong flúði inn á hásléttu Tíbets í kínverska borgarastríðinu voru hermennirnir svo hungraðir að þeir rændu klaustrin í bænum Ngaba og víðar og borðuðu trúarlegar styttur úr byggmjöli og smjöri – og álitu að þeir væru að leggja sér sjálfan Búdda til munns. Róstur og skærur í héruðunum umhverfis Ngaba leiddu til þess að íbúarnir þar urðu eitt aðalhreyfiaflið í tíbesku andspyrnunni sem náði hámarki með sjálfsíkveikjum á götum úti á 21. öldinni.
Í Að borða Búdda varpar Barbara Demick ljósi á menningu sem hefur lengi verið rómantíseruð af Vesturlandabúum sem andleg og friðsamleg. Hún sýnir hvað það þýðir raunverulega að vera Tíbetbúi í nútímanum, reyna að varðveita menningu sína, trú og tungumál fyrir óstöðvandi ofurvaldi, gripdeildum þess og viðvarandi kúgun.
„Kínverjar hafa þegar skipað nefnd sem á að velja næsta Dalai Lama. Ef við tökum ekki slaginn, þá verða þeir á undan okkur. Þeir finna einhvern sætan, lítinn, tíbeskan dreng sem þeir geta haft fulla stjórn á.“
-