• Memed mjói: saga um uppreisn og ást
  • Atburðurinn

    Atburðurinn

    „Árum saman hefur þessi atburður fylgt mér eins og skugginn. Þegar ég les um fóstureyðingu í skáldsögu fyllist ég ósjálfrátt geðshræringu, rétt eins og orðin umhverfist á samri stund í ofsafengna tilfinningu. Á sama hátt kemst ég í uppnám þegar ég heyri af tilviljun „La javanaise“, „J’ai la mémoire qui flanche“ eða önnur dægurlög sem voru mér hugstæð á þessum tíma.“ – Annie Ernaux

    Nóbelsverðlaunaskáldið Annie Ernaux er ein mikilvægasta rödd samtímabókmennta í Frakklandi.

    Atburðurinn er fjórða bókin sem kemur út eftir hana á íslensku en áður hefur Ugla gefið út Staðinn, Unga manninn og Konu.

    Þórhildur Ólafsdóttir íslenskaði.

    4.390 kr.
    Setja í körfu
  • Kona

    Kona

    Við andlát móður sinnar úr alzheimer-sjúkdómnum heldur Annie Ernaux í ferðalag aftur í tímann til að reyna að bregða upp sannferðugri mynd af konunni sem mótaði líf hennar.

    Hún veltir fyrir sér tengslum móður og dóttur, viðkvæmum og óhagganlegum í senn, ólíkum heimum sem aðskilja þær og hinum óumflýjanlega sannleika að öll sjáum við á bak þeim sem við unnum.

    Látlaus en áhrifaríku lofgjörð dóttur til móður þar sem jafnframt er brugðið upp eftirminnilegri mynd af dótturinni.

    Þórhildur Ólafsdóttir íslenskaði.

    Nóbelsverðlaunaskáldið Annie Ernaux er ein mikilvægasta rödd samtímabókmennta í Frakklandi. Tvær bækur hafa komið út eftir hana á íslensku, Staðurinn og Ungi maðurinn.

    4.390 kr.
    Setja í körfu