• Suðurríkjaherforinginn frá Big Sur

    Suðurríkjaherforinginn frá Big Sur

    Í þessari bráðfyndnu og furðulegu sögu slást lesendur í för með félögunum Jesse og Lee. Sá síðarnefni er sannfærður um að hann sé afkomandi gleymds hershöfðingja úr bandaríska borgarastríðinu. Frá hriplekum forstofum í San Francisco liggur leiðin til klettaveggja Big Sur þar sem lífið snýst um froskakvak, vináttu, ódýr vín, blekkingar, hamingju og leitina eilífu að tilgangi lífsins.

    Suðurríkjaherforingi frá Big Sur var fyrsta skáldsaga stílsnillingsins Richard Brautigan og er löngu orðið klassískt verk í bandarískum nútímabókmenntum.

    Þórður Sævar Jónsson íslenskaði.

    „Stíll hans og vitsmunir miðla svo mikilli orku að … Brautigan … fær öll skilningarvitin til að anda.“ – Newsweek

    „Heillandi, pirrandi og hræðilega fyndin bók.“– San Francisco Chronicle

    „Ótrúleg saga … Þú verður sáttari við heiminn eftir að hafa lesið hana.“ – Los Angeles Examiner

    4.690 kr.
    Setja í körfu
  • Willard og keilubikararnir hans