• Búddenbrooks

    Búddenbrooks

    Skáldsagan Búddenbrooks er án efa eitt af meistaraverkum heimsbókmennta 20. aldar. Hún hefst á því er vellauðug kaupmannsfjölskylda í Lübeck flyst í nýtt og glæsilegt hús – tákn upphefðar og auðs. Síðan er fylgst með lífi fjölskyldunnar og uppvexti barnanna í allsnægtum og áhyggjuleysi.

    Árin líða, yngri kynslóð tekur við: Tómas verður forstjóri, Kristján glaumgosinn festir sig aldrei við neitt, Toný prinsessa fjölskyldunnar, bíður skipbrot í tveimur hjónaböndum.

    Stórbrotin skáldsaga, en undarlega á mörkum veruleikans. Höfundur er í rauninni að lýsa eigin fjöl skyldu og lífinu í heimaborg sinni. Enn þyrpast aðdáendur í þúsundatali til Lübeck til að heimsækja húsið í Mengstræti og allt umhverfið sem er nákvæmlega lýst í sögunni, tengt persónulýsingum svo mannlegum og eðlilegum, að oft finnst lesandanum hann kominn mitt á meðal þeirra, bæði á hamingjustundum og í harmleiknum þegar allt hrynur.

    Aðeins 25 ára gamall skrifaði Thomas Mann þessa sögu sem er hans frægasta verk og færði honum Nóbelsverðlaunin. Hér birtist þetta mikla fjölskyldudrama loksins á íslensku í vandaðri þýðingu Þorbjargar Bjarnar Friðriksdóttur sem hefur rannsakað líf og skáldskap Mann-bræðranna.

    2.990 kr.
    Setja í körfu