• Ariasman

    Ariasman

    Ariasman – frásaga af hvalföngurum eftir Tapio Koivukari er söguleg skáldsaga um Spánverjavígin þegar 31 baskneskur skipbrotsmaður var veginn af vestfirskum bændum haustið 1615 undir forystu Ara Magnússonar, sýslumanns í Ögri.

    Tveimur árum áður en þessir atburðir urðu stendur ung stúlka, Kristrún að nafni, undir Kaldbakshorni og skolar ull. Hún sér segl við sjóndeildarhring, ókunn segl og heimamenn leggja á flótta undan útlendum sjóreyfurum, að því er þeir halda. En komumenn eru friðsamir hvalfangarar og góður kunningsskapur myndast á milli þeirra og heimamanna fyrir milligöngu sóknarprestsins. Sjálfur Vestfjarðakóngurinn, Ari í Ögri, leggur blessun sína yfir veru þeirra á Ströndum.

    Saga Spánverjavíganna og aðdraganda þeirra er hér rakin frá sjónarhorni bæði Íslendinga og Baska. Martin de Villafranca er ungur og metnaðarfullur maður í sinni fyrstu för sem hvalveiðikapteinn örlagasumarið 1615. Hann ávinnur sér brátt traust og virðingu áhafnarinnar en samskiptin við heimamenn ganga brösuglegar. Um borð er ungur piltur, aðstoðarbeykirinn Gartzia de Aranburu, en leiðir hans og Kristrúnar liggja saman.

    Skömmu fyrir brottför veiðimannanna úr Reykjarfirði um haustið skellur á mikið óveður og þá hefst atburðarás sem endar með þeim ósköpum sem enn eru talin eitt mesta óhæfuverk Íslandssögunnar.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Norma

    Norma

    Norma Ross stendur skyndilega ein uppi þegar móðir hennar lætur lífið á voveiflegan hátt. Missir hennar er mikill því þær voru ekki bara mæðgur heldur áttu þær saman vel falið leyndarmál. Á heimili móður sinnar finnur Norma ljósmyndir og vídeóupptökur sem opna augu hennar fyrir margslungnum sannleikanum um eigið líf og fortíðina og um tilveruna í heimi þar sem engum er að treysta. Þetta er myrk og dularfull fantasía um kvenlega fegurð, flókin fjölskyldubönd, óprúttin viðskipti og skipulagða glæpastarfsemi sem teygir anga sína víða.

    Sofi Oksanen hefur hlotið mikla athygli og margháttuð verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín. Norma er fjórða bók hennar sem kemur út á íslensku í þýðingu Sigurðar Karlssonar.

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Hreinsun

    Hreinsun

    1.290 kr.
    Setja í körfu