
Kæri fáviti
4.690 kr.Í Kæri fáviti skiptast þrjár ólíkar raddir á að segja frá – útskúfaður rithöfundur, þekkt leikkona og róttækur femínisti. Í gegnum tölvupóstsamskipti þeirra fáum við innlit í heim sem er gegnsýrður af kynbundinni valdbeitingu, afleiðingum #MeToo, fíkn, vináttu og leit að merkingu í heimi sem virðist oft vera að hrynja.
Kæri fáviti er óþægilega heiðarleg og snjöll samtímasaga frá einum áhrifamesta höfundi Frakklands. Bókin varð að metsölubók og hratt af stað mikilli umræðu um kynferðislega áreitni og jafnrétti á tímum samfélagsmiðla.
New Yorker valdi Kæra fávita á lista yfir bestu bækur ársins 2024.
Kristín Jónsdóttir þýddi úr frönsku.
- -13%

Dauðinn og stúlkan
Original price was: 4.590 kr..3.990 kr.Current price is: 3.990 kr..Fyrir tuttugu og fimm árum átti hin glæsilega nítján ára gamla Vinca Rockwell í leynilegu ástarsambandi við kennara sinn. Í hennar augum var ástin „allt eða ekkert.“ Þau áttu stefnumót eina vetrarnótt …
Manon, Thomas og Maxime hafa ekki talað saman síðan þau útskrifuðust, fyrir tuttugu og fimm árum, en munu nú hittast á bekkjarmóti. Mun sannleikurinn um það sem raunverulega gerðist þessa örlagaríku vetrarnótt koma í ljós?
Guillaume Musso er langsamlega vinsælasti höfundur Frakklands þessi árin og hafa skáldsögur hans verið þýddar á 40 tungumál og selst í yfir 33 milljónum eintaka um allan heim. Hann fæddist í Antibes í Suður-Frakklandi og býr í París. Þessi bók gerist í fæðingarbæ hans og er sannkallaður vegvísir um Antibes og sveitirnar umhverfis.
Kristín Jónsdóttir þýddi úr frönsku.
