-
Orðabók Lemprières
1.290 kr.Það er árið 1788. John Lemprière kemur til Lundúna frá Jersey, sjóndapur sláni, ofviti sem fáir standast snúning í fornum fræðum, klaufabárður
og upprennandi hetja í æsilegri atburðarás. Faðir hans hefur nýlega látist á voveiflegan hátt og eftirlátin gögn hans leiða piltinn á furðulega slóð þar sem Austur-Indíafélagið kemur mikið við sögu, landráð, franska byltingin, vélar af ótrúlegasta tagi, ástir og orðabókargerð, og ekki upplýsist fyrr en í lokin hver teymir hvern á asnaeyrunum.Höfundurinn Lawrence Norfolk er fæddur árið 1963 í Lundúnum og hefur fengið gríðarlegt lof fyrir þessa bók sem er engri annarri lík – ástarsaga, gleðisaga, harmsaga, pólitísk spennusaga, söguleg skáldsaga, goðsöguleg alfræðibók…
Ingunn Ásdísardóttir þýddi.
-
Sakfelling
3.890 kr.Sjö sögur frá Norður-Kóreu sem lýsa lífi fólks í landi einræðis og einangrunar í stjórnartíð Kim Jong-Il.
Eftirlitsmaður í verksmiðju neyðist til að velja á milli þess að sýna gömlum vini eða Flokknum hollustu; kona sveltir sjálfa sig til að eiginmaður hennar, fyrirvinnan, fái nóg að borða til að halda starfskröftum sínum; ljós rennur upp fyrir dyggum Flokksmnni þegar sonur hans afhjúpar raunveruleika þeirra sem leikhús fáránleikans. Einstaklega fallega skrifaðar sögur, samdar af næmni fyrir mannlegri tilveru.
Bandi, sem þýðir eldfluga, er dulnefni norðurkóresks rithöfundar sem starfar á vegum Rithöfundarsambands Norður-Kóreu en á árunum 1989-1995 skrifaði hann í leyni sögur og ljóð þar sem hann gagnrýndi stjórnarfarið í ríkinu. Árið 2013 tókst að smygla sögunum úr landi og birtast sjö þeirra í þessari bók. Rétturinn að henni hefur verið seldur til 20 landa.
Þýðandi Ingunn Ásdísardóttir.