• Ég er klárastur

    Ég er klárastur

    Úlfurinn óforbetranlegi – en óneitanlega þó nokkuð glæsilegi – fær framúrskarandi hugmynd. Hann ætlar ekki bara að éta Rauðhettu, heldur ömmu hennar líka. Og það fyrirhafnarlaust, í krafti kænsku sinnar.

    Fyrri bækur höfundar á íslensku eru metsölubækurnar Hver er flottastur? og Hver er sterkastur?

    3.290 kr.
    Setja í körfu
  • Það sem eftir er

    Það sem eftir er

    Ekkja, ungur heimilislaus maður og kona á flótta undan tilvonandi eiginmanni. Hvað getur þetta þríeyki átt sameiginlegt?

    Jeanne er 74 ára og nýorðin ein. Hún situr eftir með sorgina og hundinn Boudine í stóru Parísaríbúðinni sem hún hefur ekki efni á. Théo þorir ekki að láta sig dreyma um framtíðina þar sem hann sefur í neðanjarðarlestinni eða í gömlu bílflaki. Í grænni ferðatösku er það litla sem Iris á. Lélegt húsnæði og illa launað starf eru nýi veruleikinn hennar.

    Lífið er stundum erfitt, en getur líka verið svo magnað. Því þegar Jeanne ákveður að leigja Théo og Irisi herbergi bætir hún ekki aðeins eigin fjárhag heldur verður líf þeirra aldrei samt.

    Það sem eftir stendur er áhrifamikil og hjartnæm saga skrifuð af næmni um lífið eins og það er: brothætt og fyndið, hugljúft og átakanlegt og fullt af óvæntum augnablikum.

    Virginie Grimaldi er einn mest lesni höfundur Frakklands og skáldsögur hennar hafa verið þýddar á yfir 20 tungumál.

    Guðrún Vilmundardóttir þýddi úr frönsku.

    4.690 kr.
    Setja í körfu
  • -17% Mig langar svo í krakkakjöt

    Mig langar svo í krakkakjöt

    Hvað eiga krókódílamamma og krókódílapabbi að taka til bragðs þegar Grettir litli krókódíll segist ekki vilja borða neitt nema … krakkakjöt? Hæfilega skelfileg og skemmtilega myndskreytt frönsk barnabók sem fullorðnir nenna að lesa aftur og aftur. Og aftur.

    Original price was: 2.990 kr..Current price is: 2.490 kr..
    Setja í körfu
  • Milarepa

    Milarepa

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Óskar og bleikklædda konan
  • Herra Ibrahim og blóm Kóransins
  • Nafnabókin

    Nafnabókin

    Og þannig bar það til að hún varð virtasti tossi í Frakklandi.

    Þegar Lucette varð ólétt var hún ákveðin í að barnið hennar fengi nafn sem hæfði stórkostlegri framtíð þess. Faðirinn hafði aðrar hugmyndir um nafngjöfina. Það varð þeirra beggja bani. Stúlka fæddist og fékk nafnið Plectrude og var komið í fóstur hjá móðursystur sinni.
    Og Plectrude beið sannarlega glæst framtíð. Hún varð ballerína og önnur eins dansfegurð hafði ekki sést fyrr. En það er enginn dans á rósum að vera framúrskarandi ballerina.

    Amélie Nothomb er vinsælasti höfundur Frakklands um þessar mundir og eru bækur hennar þýddar á fjölmargar heimstungur. Áður hefur komið út eftir hana á íslensku bókin Undrun og skjálfti.

    Guðrún Vilmundardóttir þýddi.

    1.290 kr.
    Setja í körfu