• Bókin um simpansana

    Bókin um simpansana

    „Til þess að geta boðið börnum bók um dýr og mælt skilyrðislaust með henni verður maður að vera fullviss um að höfundurinn hafi til að bera staðgóða og trausta þekkingu á efninu. Enginn í heiminum skilur simpansa betur en Jane Goodall. Þar við bætist að hún lýsir þeim með hlýju og gamansemi svo að umfjöllun vísinda- mannsins verður bæði börnum og fullorðnum sannur skemmtilestur. Myndir bókar- innar tala líka skýru máli og sýna glöggt að enginn hefur kynnst hópi villtra dýra betur en Jane Goodall simpönsunum sínum.“
    Konrad Lorenz, nóbelsverðlaunahafi í dýrafræði.

    Bókin hlaut fyrstu verðlaun alþjóðlegs verðlaunasjóðs barnabóka 1989.
    Hún er í flokki bóka sem fjalla um fjölskyldur dýra – einkum tengsl móður og afkvæmis.
    Næsta bók okkar í flokknum segir frá „villta“ íslenska hestinum.

    2.990 kr.
    Setja í körfu
  • Eldar kvikna

    Eldar kvikna

    Eftir að hafa sigrað í Hungurleikunum og skilað bæði sér og Peeta, félaga sínum úr Tólfta umdæmi, heim í heilu lagi ætti Katniss að vera himinlifandi. Hún flytur inn í Sigurþorp, þarf aldrei framar að óttast hungur og getur aftur farið á veiðar með æskuvininum Gale.

    En ekkert er eins og það á að vera: Gale er gerbreyttur, Peeta snýr við henni baki og vaxandi ólga í Panem veldur áhyggjum. Í sigurvegaraferðinni verða Katniss og Peeta að kæfa allar uppreisnartilraunir í fæðingu – hvort sem þau kæra sig um það eða ekki – annars er miklu meira í húfi en nýfengið ríkidæmi og þægindi.

    Eldar kvikna er önnur bókin í þríleik Suzanne Collins um Hungurleikana sem farið hefur sigurför um heiminn. Hér kemur hún lesendum á óvart hvað eftir annað svo engin leið er að leggja bókina frá sér fyrr en að lestri loknum.

    Guðni Kolbeinsson þýddi.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Bækur duftsins

    Bækur duftsins

    1.290 kr.
    Setja í körfu