• Minnisblöð veiðimanns (kilja)

    Minnisblöð veiðimanns (kilja)

    Skáldjöfurinn Ívan Túrgenev kynntist snemma bágum kjörum rússneskra bænda og miskunnarleysi þeirra sem réðu yfir þeim. Hann ólst upp á landareign móður sinnar, sem þótti með eindæmum óvægin og grimm, en hún hafði yfir að ráða meira en fimm þúsund „sálum“ eins og ánauðugir bændur voru gjarnan nefndir. Reynsla Túrgenevs úr uppvextinum varð honum innblástur í þessa bók, Minnisblöð veiðimanns, sem kemur nú út í fyrsta sinn á íslensku.

    Í Minnisblöðum veiðimanns ferðast sögumaður um sveitir Rússlands og hittir landeigendur, ráðsmenn, bændur og bóndakonur auk annarra minnisstæðra persóna. Hann lýsir þessu fólki með raunsönnum og eftirminnilegum hætti en sagan er þó ekki síður óður til rússneskrar náttúru – birkiskóganna og sveitarinnar.

    Þegar bókin kom út árið 1852 var Túrgenev handtekinn og sendur í útlegð á ættaróðal sitt. Bókin er þó sögð hafa haft mikil áhrif á Aleksander II. Rússakeisara en það var hann sem steig loks það afdrifaríka skref að aflétta bændaánauðinni árið 1861.

    Áslaug Agnarsdóttir íslenskaði og ritaði eftirmála.

    5.390 kr.
    Setja í körfu
  • Dauðinn og mörgæsin

    Dauðinn og mörgæsin

    Áður en Viktor fór að hátta fékk hann sér te og hugsaði um dauðann. Það reyndist honum létt. Á meðan rölti mörgæsin Misha fram og til baka eftir myrkum ganginum og skellti sér við og við á lokaðar eldhúsdyrnar.

    Sögusviðið er Úkraína eftir að Sovétríkin hafa liðast í sundur. Viktor, lánlaus og hæglátur rithöfundur, býr í lítilli blokkaríbúð ásamt þunglyndri mörgæs sem hann hefur tekið í fóstur af fjárvana dýragarði Kiev. Einn daginn er hann ráðinn í lausamennsku við eitt dagblað borgarinnar til að skrifa minningargreinar um mikilsháttar menn í samfélaginu sem blaðið vill hafa til taks þegar viðkomandi hrekkur upp af. Skyndilega virðist veröldin brosa við Viktori. En eftir því sem dagarnir líða verður heimilislíf hans stöðugt flóknara auk þess sem starf hans á blaðinu hefur ýmsar miður heppilegar afleiðingar í för með sér.

    Í þessari bráðskemmtilegu og tregafullu skáldsögu fjallar Andrej Kúrkov um fjarstæðukenndan veruleika hversdagsfólks í löndum Austur-Evrópu eftir fall járntjaldsins. Sagan hefur verið þýdd á fjölda tungumála á síðustu misserum og alls staðar fengið rífandi dóma.

    Áslaug Agnarsdóttir þýddi úr rússnesku.

    1.290 kr.
    Setja í körfu