
Fellur mjöll í sedrusskógi
1.990 kr.ÞAÐ ER ÁRIÐ 1954 og sögusviðið er eyjan San Piedro úti fyrir ströndum Washingtonfylkis í Bandaríkjunum. Þar búa sjómenn og bændur, bæði af evrópsku og japönsku bergi brotnir og þarna mætast straumar úr ólíkum menningarheimum.
Fiskimaðurinn Carl Heine finnst látinn við dularfullar kringumstæður og böndin berast fljótlega að Kabuo Miyomoto sem er ákærður fyrir morð. Söguþráðurinn spinnst í kringum réttarhöldin yfir Kabuo sem ýfa upp vantraust og fordóma margra eyjarbúa gagnvart fólki af japönskum ættum eftir síðari heimsstyrjöld. Og æskuástin rifjast upp fyrir Ishmael Chambers, ritstjóra fréttablaðs eyjarinnar.
David Guterson kann þá list að heilla lesendur sína. Hann magnar upp andrúmsloftið á eyjunni San Piedro svo að persónurnar og samskipti þeirra, náttúran og veðrið, sagan öll, verða ljóslifandi í huga lesenda og grípa þá sterkum tökum.
Fellur mjöll í sedrusskógi hefur farið sigurför um heiminn á undanförnum árum og verið þýdd á fjölda tungumála.
Árni Óskarsson þýddi.







Vernon G. Little
1.290 kr.Vernon G. Little er 15 ára drengur sem búsettur er í bandarískum smábæ og á allt annað en auðvelt með að fóta sig í tilverunni. Hann lumar líka á allskyns mismerkilegum leyndarmálum, eins og kemur á daginn þegar yfirvöld og fjölmiðlar fá áhuga á honum í framhaldi af blóðugum fjöldamorðum í skólanum hans. Fyrr en varir er Vernon flæktur í þéttan lygavef sem torvelt reynist að losna úr.
D.B.C Pierre hlaut, flestum að óvörum, Bookerverðlaunin fyrir þessa frumraun sína á sviði skáldskapar árið 2003. Síðan þá hefur bókin verið þýdd á fjölda tungumála og hvarvetna hlotið frábærar viðtökur. Hún er gegnsýrð af kolsvörtum húmor og nístandi kaldhæðni, en birtir jafnframt nýstárlega sýn á veruleika almennings á Vesturlöndum.
