
Svarta meinið
1.290 kr.JEVGENÍJ PETROVÍTSJ hefur misst konu sína og býr við fátækt í París. Hann langar að freista gæfunnar og flytur búferlum til Ameríku, þar sem hann ræður sig í vinnu til auðugra mæðgina. Jevgeníj bindur miklar vonir við vin sinn í Chicago en bæði vinurinn, borgin og konurnar sem hann kynnist reynast öðru vísi en hann vænti.
Svarta meinið er skemmd sem hefur vaxið í demanti einum á löngum tíma og verður eins konar grunntónn í sögunni. Hún einkennist öll af sérstæðu andrúmslofti, sem er tjáð jöfnum höndum með atburðarás og stíl, á afar listfengan hátt.
Nína Berberova hefur vakið mikla athygli víða um lönd fyrir sögur sínar. Í fyrra kom út sagan Undirleikarinn eftir hana.
Árni Bergmann þýddi.

