-
Síðasta fiðrildið
4.890 kr.Nima Hasan er palestínskt skáld og rithöfundur, fædd 1980 í Rafah á Gazaströndinni, þar sem hún hefur búið alla ævi. Eftir að hafa hrakist þaðan á brott mörgum sinnum er hún nú búsett í tjaldbúðum í Deir al-Balah. Þetta úrval kom fyrst út á sænsku fyrir ári síðan. „Mikilvægasta lesning haustsins,“ var skrifað í dómi í Dagens Nyheter.
Eftir innrás Ísraelsmanna í október 2023 fór Nima Hasan að birta ljóð sín á samfélagsmiðlum og sænskur þýðandi hreifst af þeim og þýddi nánast jafnóðum og gaf síðan út. Í umsögn um bókina sagði meðal annars: „Þetta er í fyrsta skipti í bókmenntasögunni sem ljóð eru beinlínis samin á meðan sprengjurnar falla og birt jafnóðum fyrir lesendur víða um heim.“ Skáldið og rithöfundurinn Mazen Maarouf sem hefur verið búsettur á Íslandi um árabil skrifaði um íslensku þýðinguna: „Þessi ljóð eru lifandi vitnisburður um dauða, sársauka og óorðuð hversdagsleg spursmál á Gaza. Það er einsog Nima Hasan gefi öllu brothættu og jaðarsettu ljóðrænan tón og heimspekilega vídd til að bjarga því frá eyðileggingu.“
-
Vísur Svantes
4.890 kr.Þessi stórskemmtilega bók eftir danska skáldið, rithöfundinn og tónlistarmanninn Benny Andersen fjallar um næstum óþekkt og hugsanlega látið ljóðskáld að nafni Svante Svendsen sem bað höfundinn um að semja tónlist við ljóðin sín. Verkið kemur nú út í fyrsta sinn á íslensku, bæði í bókarformi og á hljómplötu, á aldarafmæli söguhetjunnar.
Með gamansömum og sérstæðum hætti segir höfundurinn frá kynnum sínum af skáldinu óhamingjusama sem kynnti sig gjarnan þannig:
Svante Svendsen, fæddur Svensson, varð viðskila við skánska foreldra mína á Malmö-ferjunni í ágúst 1935 og hef síðan orðið að sjá um mig sjálfur með aðstoð annarra.
Vísur Svantes slógu í gegn í Danmörku, ekki síst vegna þess að í kjölfar bókarinnar kom út hljómplata með söngvunum sem Povl Dissing túlkaði af stakri snilld við undirleik Benny Andersen og hljómsveitar.
Samnefnd hljómplata með túlkun þýðandans og tónlistarmannsins Aðalsteins Ásbergs, auk Gunnars Gunnarssonar á píanó og Birgis Steins Theodórssonar á kontrabassa kemur út samhliða bókinni.
-
-
Skýin eru skuggar – ljóðaúrval
4.590 kr.Nóbelsskáldið Jon Fosse byrjaði snemma að yrkja, að sögn fyrir fermingu, og eitt af því fyrsta sem hann setti á blað var ljóð um hafið, dauðann og ástina. Síðan hefur hann orðið einn af mikilvægustu rithöfundum samtímans og ber þar hæst prósaverk og leikrit, en ljóðlistin hefur þó alla tíð fylgt honum og er mikilvægur hluti af höfundarverkinu í heild.
Þetta ljóðaúrval spannar fjóra áratugi á ferli skáldsins og veitir góða innsýn í þá veröld sem verk hans snúast um.
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson íslenskaði.
-
Heyrnarlaust lýðveldi
3.790 kr.Heyrnarlaust lýðveldi er nýstárleg og áhrifamikil ljóðabók sem fjallar um atburði í ónefndum bæ á stríðstímum. Þegar innrásarlið drepur heyrnarlausan dreng, verður byssuskotið það síðasta sem bæjarbúar heyra – allir missa heyrnina, en angist, reiði, skelfing og uppgjöf eru látin í ljós á táknmáli. Ljóðin eru tilfinningarík og dansa frjálslega á mörkum frásagnar og leikrits. Frásagnaraðferð skáldsins er bæði sérstæð og hrífandi, enda hefur bókin hlotið einróma lof og verið tilnefnd til verðlauna.
Ilya Kaminsky fæddist í Úkraínu, sem þá var hluti af Sovétríkjunum, en fluttist til Bandaríkjanna ungur að árum og skrifar á ensku. Verðlaunabók hans Dansað í Ódessa kom út í íslenskri þýðingu Sigurðar Pálssonar og Sölva Björns Sigurðssonar árið 2018.
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson íslenskaði.