• Vita Brevis

    Vita Brevis

    „FARÐU ÚT, ÁRELÍUS! Farðu út og leggstu undir fíkjutré. Opnaðu skilningarvit þín – þó ekki væri nema í þetta hinsta sinn. Mín vegna, Árelíus, og vegna alls sem við tvö gáfum eitt sinn hvort öðru. Dragðu andann, hlustaðu á fuglasönginn, horfðu upp í himinhvelfinguna, og finndu angan alls. Það er þetta sem er heimurinn, Árelíus, og hann
    er hér núna.“

    Í þessari áhrifamiklu sögu um átök ástarinnar og hugmyndanna segir frá því hvernig sögumaður finnur bréf hjá fornbókasala sem reynist vera til Ágústínusar kirkjuföður frá Flóríu ástkonu hans. Í bréfinu lýsir hún samlífi þeirra sem er heitt og innilegt. En eggjaður af móður sinni bælir Ágústínus niður tilfinningar sínar og langanir, hann afneitar Flóríu og syni þeirra, tilvera hans verður þaðan í frá helguð andlegum og trúarlegum efnum. Kirkjan er brúður hans og heimspeki hennar verður hans hlýðniboðorð. Þar með svíkur Ágústínus ástkonuna fyrir hugmyndir sínar um Guð.

    Í Vita Brevis fjallar Jostein Gaarder um heimspeki við lok fornaldar og trúarviðhorf Ágústínusar eins og þau birtast í frægustu játningabók heims: Játningum Ágústínusar.

    Aðalheiður Steingrímsdóttir og Þröstur Ásmundsson þýddu.

    1.290 kr.
    Setja í körfu