• À pleins poumons

    À pleins poumons

    Lungu á frönsku.

    4.690 kr.
    Setja í körfu
  • Litlar konur

    Litlar konur

    Litlar konur (Little Women) eftir bandaríska rithöfundinn Louisu May Alcott er ein vinsælasta skáldsaga síðari tíma.

    Bókin segir uppvaxtarsögu fjögurra systra — hinnar fögru og dygðugu Möggu, strákastelpunnar Jóu, hinnar blíðlyndu Betu og ofdekruðu Önnu litlu. Tilvera þeirra fer úr skorðum þegar fjárhagur fjölskyldunnar hrynur. Í sama mund er faðir systranna kallaður í herinn, en sagan gerist í skugga bandaríska borgarastríðsins á nítjándu öld. Nokkru síðar fer móðir þeirra að hjúkra föðurnum. Systurnar fjörmiklu þurfa þá að takast á við lífið upp á eigin spýtur.

    Hugljúf og skemmtileg skáldsaga sem hefur heillað kynslóðir lesenda, eða allt frá því að hún kom fyrst út árið 1868.

    Louisa May Alcott (1832–1888) var þekktur feministi á sinni tíð og tók einnig þátt í baráttunni fyrir afnámi þrælahalds. Litlar konur er frægasta bók hennar. Hún byggir að hluta á æsku hennar sjálfrar. Alcott barðist hart fyrir því að konur fengju kosningarétt og var fyrsta konan til að skrá sig sem kjósanda í bænum Concord í Massachusetts.

    Endurskoðuð þýðing Páls Skúlasonar ritstjóra.

    4.690 kr.
    Setja í körfu
  • Júlía

    Júlía

    Áhrifamikil og djörf endursköpun á skáldsögunni frægu 1984 eftir George Orwell þar sem varpað er ljósi á líf kvenna í Eyjaálfu.

    Hér beinist sjónarhornið að Júlíu, einni dularfyllstu persónu 1984. Kæfandi veruleiki Eyjaálfu lifnar við á nýjan og óhugnanlegan hátt og afhjúpar það sem þarf til að lifa af undir stöðugu eftirliti Stóra bróður. Á endanum neyðist Júlía til að horfast í augu við mörk frelsis, sannleika og langana í samfélagi sem byggist á algjörri stjórn.

    Mögnuð skáldsaga sem býður jafnframt upp á ferska sýn á hið sígilda verk Orwells.

    Friðrika Benónýsdóttir íslenskaði.

    * * * * * „Meistaraverk.“ The Telegraph

    „Glæsileg skáldsaga.“ Booklist

    „Skrifuð af mikilli list.“ The Times

    „Heillandi ígrundun á alræðisstefnu eins og hún speglast í samtíma Orwells og okkar eigin.“ Guardian

    „ Áhrífamikil … Newman nær að gefa öllum konunum rödd og best tekst henni endursköpun Júlíu sjálfrar sem er ekki lengur bara peð, svikin kona, heldur fullkomlega mótuð kraftmikil persóna, kona sem lifir af í hættulegum heimi.“ Irish Times

    Auk Júlíu hefur bandaríska skáldkonan Sandra Newman meðal annars sent frá sér bækurnar The Country of Ice Cream Star og The Western Lit Survival Kit.

    4.690 kr.
    Setja í körfu
  • Syngjandi steinn

    Syngjandi steinn

    Í þessari bók rýnir skáldið, rithöfundurinn og bókmenntaprófessorinn Njörður P. Njarðvík í 39 ljóð eftir 38 af okkar fremstu skáldum. Njörður greinir uppbyggingu ljóðanna, merkingu þeirra og tilætluð áhrif í samspili orða, hljóms og menningar.

    Ljóðrýni þessi á uppruna sinn í kennslu Njarðar í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands og birtist í blöðum á sínum tíma en er hér safnað í eina heild í tímaröð bókmenntasögunnar.

    Njörður P. Njarðvík (1936–), prófessor emeritus, hefur sent frá sér fjölda bóka – ljóð, skáldsögur, barnabækur, ævisögur, kennslubækur og fræðirit auk þýðinga. Hann hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir bækur sínar og störf.

    4.690 kr.
    Setja í körfu
  • Fimmta barnið

    Fimmta barnið

    Fjögur yndisleg börn, fallegt gamalt hús, ástríkir ættingjar og vinir – líf Harriet og Davids Lovatt er hamingjusamt og gleðiríkt. En þegar fimmta barnið fæðist leggst dimmur skuggi yfir heimilislífið. Hinn ungi Ben er stór og ófrýnilegur, ofbeldisfullur og stjórnlaus. Harriet berst við að annast nýfætt barnið en stendur frammi fyrir myrkum og undarlegum mótþróa. Óttaslegin spyr hún sjálfa sig hvað það eiginlega sé sem hún hefur fætt í þennan heim …

    Áhrifarík skáldsaga eftir Nóbelsverðlaunahafann Doris Lessing.

    Ragnheiður Jónsdóttir íslenskaði.

    „Það fer hrollur um mann við lesturinn en það er ómögulegt að leggja bókina frá sér … áhrifum hins undarlega og framandi barns á fjölskylduna er lýst af yfirvegun sem gerir vaxandi hryllinginn enn áhrifameiri.“ Sunday Times

    „Lesið og skjálfið!“ Independent

    Breski rithöfundurinn Doris Lessing (1919–2013) hlaut margskonar viðurkenningar fyrir verk sín, þar á meðal Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2007. Sjö bóka hennar hafa verið þýddar á íslensku, þar á meðal Grasið syngur (The Grass is Singing) í þýðingu Birgis Sigurðssonar, Minningar einnar sem eftir lifði (The Memoirs of a Survivor) í þýðingu Hjartar Pálssonar og Í góðu hjónabandi (A Proper Marriage) í þýðingu Fríðu Á. Sigurðardóttur. Af öðrum rómuðum skáldsögum hennar, auk Fimmta barnsins, má nefna The Golden Notebook og The Good Terrorist. Hún gaf einnig út sjálfsævisögu sína í tveimur bindum, Under My Skin og Walking in the Shade. Doris Lessing lést 17. nóvember 2013, 94 ára að aldri.

    Ragnheiður Jónsdóttir hefur lokið BS-prófi í sálfræði. Hún hefur starfað við þýðingar frá því hún útskrifaðist úr meistaranámi í þýðingafræði frá Háskóla Íslands vorið 2024.

    4.690 kr.
    Setja í körfu
  • Í framlínu: lögreglumenn segja frá

    Í framlínu: lögreglumenn segja frá

    Í bókinni birtist lesandanum reynsla lögreglumanna og viðhorf þeirra til starfsins í gegnum þeirra eigin frásagnir, sem fela um leið í sér sögulegt yfirlit löggæslu síðustu 40 ára. Viðmælendur skipta tugum, eru af báðum kynjum og á öllum aldri, víðs vegar af landinu og búa að fjölbreyttum bakgrunni. Viðlíka innsýn hefur ekki áður verið gefin í lögreglustarfið hérlendi

    5.490 kr.
    Setja í körfu
  • Spegill, spegill

    Spegill, spegill

    Töfrandi bók fyrir yngstu lesendurna sem umbreytir myndum með einföldum spegli. Á augabragði breytist fiskur í kött og bangsi í skjaldböku! 

    3.890 kr.
    Setja í körfu
  • Mjölnir – Hammer of Thor

    Mjölnir – Hammer of Thor

    Historically, Viking Age pagan Scandinavians often wore amulets depicting the hammer of the beloved god Thor. This beautiful, art-filled, and scholarship-grounded book examines this phenomenon, highlighting and discussing a variety of examples from the historical record. It additionally contains discussion of the contemporary revitalization of this ancient practice far beyond Viking Age Scandinavia. Authored by folklorist Joseph S. Hopkins, thoroughly illustrated by artist Jacqui Alberts Lund, and introduced by scholar Katherine Beard, this book serves as a solid introduction to the topic that encourages readers to dig deeper.

    3.990 kr.
    Setja í körfu
  • Íslensku tröllabörnin

    Íslensku tröllabörnin

    Tröll hafa byggt Ísland frá því löngu áður en menn settust hér að. Samt vitum við furðu lítið um þau enda hafa tröllin lært að oft er betra að láta lítið fyrir sér fara. Í þessari bráðskemmtilegu bók er hulunni svipt af lífsháttum tröllanna með sérstakri áherslu á litla tröllafólkið – sem er samt ekkert svo lítið! Hvernig alast tröllabörnin upp, hvað borða þau og af hverju sofa tröllabörn þegar þau eiga að vera að læra? Og hvað þykir þeim flott og hvernig tolla þau í tískunni? Eða hvað er eiginlega í gangi á milli trölla og hrafna? Loksins fáum við svör við þessum áleitnu spurningum og margt kemur á óvart.

    Í þessari myndríku bók vekur Brian Pilkington magnaðan hulduheim til lífsins á sinn tröllskemmtilega og nýstárlega hátt. Þjóðsögurnar okkar eru notaðar sem bakgrunnur en miklu af nýjum og óvæntum upplýsingum bætt við. Og þar sem þeim sleppir tekur við óviðjafnanleg sköpunargleði og innsæi þessa ástsæla listamanns.
    4.990 kr.
    Setja í körfu
  • Ég vil ekki fara að hátta

    Ég vil ekki fara að hátta

    Lassi er fimm ára og vill aldrei fara að hátta. Þegar mamma hans segir honum að fara í rúmið vill hann frekar byggja úr kubbum, teikna eða hoppa ofan af eldhúsborði. Kvöld eitt heimsækir hann Lottu gömlu sem býr í íbúðinni fyrir ofan. Hún leyfir honum að prófa gleraugun sín – og það eru sko engin venjuleg gleraugu! Með þeim getur hann séð í gegnum holt og hæðir og fylgst með háttatíma dýranna.

    Þessi sígilda saga Astridar Lindgren, með myndum eftir Ilon Wikland, er nú loks fáanleg á ný. Vilborg Dagbjartsdóttir þýddi.
    5.190 kr.
    Setja í körfu
  • Sólmyrkvar

    Sólmyrkvar

    Sólmyrkvar eru magnaðasta sýning sem náttúran bíður upp á. Alger sirkus! En þeir eru ekki bara einstaklega fallegir, heldur hafa þeir hjálpað okkur að afhjúpa leyndardóma sólar, staðfest eina merkilegustu vísindakenningu sögunnar og leitt í ljós að sólarhringurinn á Jörðinni er að lengjast. Í bókinni eru merkilegar sögur af fólki sem lagði mikið á sig til að sjá tunglið hylja sólina og einnig útskýrt hvernig á að fylgjast með sólmyrkvum á öruggan hátt.

    SÓLMYRKVAR er skemmtileg bók og skorinort, stútfull af frábærum fróðleik og fjörugum staðreyndum úr heimi vísindanna. Litmyndir Elíasar Rúna eru stórsniðugar og útskýra flókna hluti á skýran hátt. Hamfarir og Kúkur, piss og prump, úr sama bókaflokki, voru báðar tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
    Sólmyrkvagleraugu til að fylgjast með sólmyrkvanum 2026 fylgja með hverju eintaki en hér má líka kaupa þau stök! Þeim sem kaupa bókina býðst að kaupa auka gleraugu með 50% afslætti með því að nota kóðann solmyrkvi26.
    5.390 kr.
    Setja í körfu
  • Iceland's Troll Children

    Iceland’s Troll Children

    Trolls have shaped Iceland since long before humans settled here. Yet we know surprisingly little about them, for trolls have learned that it is often wiser to keep a low profile. In this wonderfully entertaining book, the veil is lifted on the lives of trolls, with special focus on the little troll-folk (who aren’t actually that little at all!). How are troll children raised, what do they eat, an why do they fall asleep when they’re supposed to be learning? How do they keep up with fashion and what exactly is going on between trolls and ravens? At last, we get answers to these pressing questions—and many surprises along the way.

    In this richly illustrated book, Brian Pilkington brings a magical hidden world to life in his uniquely amusing and innovative way. The Icelandic folk legends serve as a backdrop, but a wealth of new and unexpected information is added. And where that leaves off, the unmatched creativity and insight of this beloved artist take over.
    4.990 kr.
    Setja í körfu
  • Svanvængjuð þrá

    Svanvængjuð þrá

    Svanvængjuð þrá er áttunda ljóðabók metsöluhöfundarins Valdimars Tómassonar. Hér er ort um brostnar vonir, sorg og tilgangsleysi á einstaklega næman og fínlegan hátt. Formið sækir Valdimar til þríhendunnar en kveður þó með sínu lagi.

    5.190 kr.
    Setja í körfu
  • Skaðræðisskepnur

    Skaðræðisskepnur

    Þegar Gunnar lendir enn einu sinni í vandræðum í skólanum ákveða foreldrar hans að senda hann í sveit. Á bænum Steini býr stórskrýtin fjölskylda ásamt óþolandi ketti og beljum sem virðast aldrei ætla að hætta að skíta. En eitthvað leynist í sveitinni. Eitthvað óhugnanlegt og hættulegt sem felur sig í hrauninu og skilur eftir sig risastór fótspor …

    Skaðræðisskepnur – Einu sinni var … er fyrsta bókin í nýjum og æsispennandi bókaflokki, listilega myndlýst af Bergrúnu Öddu Pálsdóttur.

    Ævar Þór Benediktsson er einn allra vinsælasti rithöfundur landsins. Skaðræðisskepnur er fertugasta bókin hans en fyrir verk sín hefur Ævar fengið fjölda verðlauna og viðurkenninga, nú síðast Íslensku bókmenntaverðlaunin og tilnefningu til bæði Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og Bókaverðlauna barnanna fyrir metsölubókina Skólastjórann.

    Bókin er prentuð með sérstöku lesblinduletri.

    4.790 kr.
    Setja í körfu
  • Harðindi

    Harðindi

    Steinn leggur ríðandi af stað úr bænum og ætlar aldrei að snúa aftur. Hann hefur misst trúna á framtíðina eftir að lífið í landinu fór snarversnandi á aðeins örfáum árum. Hrakinn og særður er hann á mörkum þess að gefast upp þegar loks sjást blikur á lofti.

    Harðindi er spennandi og áleitin frásögn af ferðalagi manns og merar á nöturlegum tímum.
    Vilhjálmur Pétursson hefur starfað við þýðingar síðan hann útskrifaðist úr ritlist við Háskóla Íslands. Harðindi er fyrsta bók hans en sagan bar sigur úr býtum í handritasamkeppni Forlagsins, Nýjum röddum, árið 2026.
    4.790 kr.
    Setja í körfu
  • Salka Valka

    Salka Valka

    Sagan af uppvexti og þroska hinnar stoltu og sterku Sölku Völku á Óseyri við Axlarfjörð er í senn saga þorps og svipmikilla einstaklinga. Í þorpinu ræður kaupmaðurinn lögum og lofum en lífsbarátta alþýðunnar er hörð og óvægin. Þegar nýir vindar blása um samfélagið fara átakatímar í hönd – en ávallt leika ást og dauði undir.

    Salka Valka er meðal þekktustu skáldsagna Halldórs Laxness. Hún kom upphaflega út í tveimur bindum 1931–1932 og hefur verið gefin út margoft síðan heima og erlendis.
    9.990 kr.
    Setja í körfu
  • Sjálfstætt fólk

    Sjálfstætt fólk

    Saga hins þrjóska einyrkja, Bjarts í Sumarhúsum, og baráttu hans við allt og alla er bæði þjóðleg og alþjóðleg – sígild frásögn af hlutskipti fátæks fólks í hörðum heimi. Magnaðar persónulýsingar og djúpur mannskilningur gera þessa miklu sögu að óviðjafnanlegu bókmenntaverki þar sem leikið er á strengi andstæðra tilfinninga af stakri snilld.

    Sjálfstætt fólk er þekktasta skáldsaga Halldórs Laxness og sú sem víðast hefur ratað. Hún kom fyrst út í tveimur bindum 1934–1935 og hefur verið gefin út margsinnis síðan á ótal tungumálum.
    9.990 kr.
    Setja í körfu
  • Samfélag heilagra

    Samfélag heilagra

    Samfélag heilagra er rannsókn á mannlegu samfélagi þar sem umbreytandi tímamót í lífi og dauða fólks eru krufin. Sex höfundar flétta saman sjálfssögum um vígslur, veislur og nýtt upphaf þar sem tekist er á við spurningar um hlutverk trúarbragða í nútímanum og kannað hvernig manneskjan mótar sjálfsmynd sína í tengslum við það samfélag sem hún tilheyrir.

    „Og þetta er það sem er virkilega í húfi, Síta – þetta samfélag heilagra. Ekki heilagra manna og kvenna, ekki heilags anda eða orða, heldur tengsla – tengsla sem binda okkur hvert við annað…“

    Bókin er samstarfsverkefni meistaranema í ritlist og hagnýtri ritstjórn og útgáfu við Háskóla Íslands

    4.590 kr.
    Setja í körfu
  • Í fylgd norðanpósts í 150 ár

    Í fylgd norðanpósts í 150 ár

    Var póstur kominn?
    Nú ætlar honum að seinka!

    Magnús Pétursson fór á árunum 2021 til 2023 gangandi og á hestum milli Reykjavíkur og Skagafjarðar og fylgdi á ferðalaginu slóð norðanpósta fyrri tíðar sem fóru vegleysur og yfir heiðar og ár í öllum veðrum. Hann fer yfir póstsöguna, rifjar upp frásagnir um hetjudáðir landpósta og hrakninga og segir frá þætti þeirra í því að færa fólki nauðsynlega upplýsingu og fróðleik til að efla vitund þess um eigin getu í framfarasókn þjóðarinnar. Þetta er alvöruþrungin frásögn en oft í gamansömum tón.

    5.190 kr.
    Setja í körfu
  • Þú sem ert á jörðu (kilja)

    Þú sem ert á jörðu (kilja)

    „Smám saman brá dagrenning birtu á landslagið. Að baki þeim rann jökullinn til sjávar og snæviþaktar þúfur vörpuðu löngum skuggum undir fannhvítum fjallshlíðum. Manneskjan gekk um þennan svarthvíta heim í skærlitum dúnjakka og með rauða púlku í eftirdragi. Á eftir henni tölti hundurinn í nokkuð hófsamari litbrigðum“

    Í þessari mögnuðu skáldsögu fylgjum við lífshlaupi konu sem elst upp á heimskautasvæði á tímum mikilla umhverfis- og samfélagsbreytinga. Líf hennar tekur stakkaskiptum og hún flækist inn í atburðarás sem flytur hana yfir heimshöfin. Á einmanalegri ferð sinni um ólík vistkerfi sér hún gjörbreyttan heim og rifjar upp örlög horfinna ástvina, sem og heimsins sem hún kveður.

    Þú sem ert á jörðu er hugleiðing um hamfarahlýnun, útdauða og mannmiðaða sýn á veröldina. Hér er maðurinn ekki guð heldur tilheyrir náttúrunni og er jafn háður kenjum hennar og aðrar lífverur á jörðinni.

    4.790 kr.
    Setja í körfu