-
Bróðir minn Ljónshjarta
6.390 kr.Jónatan hughreystir Kalla bróður sinn sem er dauðvona og segir honum frá Nangijala, þar sem ævintýri bíða þeirra sem deyja. Svo fer að Jónatan deyr á undan en fljótlega eru þeir bræður sameinaðir í spennandi atburðarás.
-
Elsku Míó minn
4.590 kr.Það sem Búi finnur í garðinum virðist við fyrstu sýn bara vera ósköp venjuleg pilsnerflaska. En Búi sér eitthvað hreyfa sig ofan í henni og þó að hann hafi oft heyrt sögur um anda sem búa í flöskum trúir hann ekki sínum eigin augum þegar andi skýst út um stútinn á flöskunni hans.
Búi á líka bágt með að trúa því sem andinn segir – að hann sé kominn frá Landinu í fjarskanum til að sækja hann!
Elsku Míó minn er ein af vinsælustu bókum eftir Astrid Lindgren og kemur nú í 5. skiptið á íslensku. Heimir Pálsson þýddi
-
Ég vil ekki fara að hátta
5.190 kr.Lassi er fimm ára og vill aldrei fara að hátta. Þegar mamma hans segir honum að fara í rúmið vill hann frekar byggja úr kubbum, teikna eða hoppa ofan af eldhúsborði. Kvöld eitt heimsækir hann Lottu gömlu sem býr í íbúðinni fyrir ofan. Hún leyfir honum að prófa gleraugun sín – og það eru sko engin venjuleg gleraugu! Með þeim getur hann séð í gegnum holt og hæðir og fylgst með háttatíma dýranna.
Þessi sígilda saga Astridar Lindgren, með myndum eftir Ilon Wikland, er nú loks fáanleg á ný. Vilborg Dagbjartsdóttir þýddi.