• Eitruð epli

    Eitruð epli

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Eldhús

    Eldhús

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Kertin brenna niður

    Kertin brenna niður

    Tveir gamlir vinir, sem áður voru óaðskiljanlegir, fyrrverandi foringjar í her Austurríkis-Ungverjalands, hittast á ný eftir ríflega fjörutíu ára aðskilnað. Fjórum áratugum fyrr gerðist örlagaríkur atburður sem leiddi til algers skilnaðar þeirra og lagði líf þeirra í rúst. Allan þennan tíma hafa þeir beðið endurfundanna, og nú þegar ævilokin nálgast verður hinn raunverulegi sannleikur afhjúpaður.

    Ungverski rithöfundurinn Sándor Márai (1900-1989) féll í ónáð við valdatöku kommúnista þar í landi, flýði til Bandaríkjanna og lést þar í útlegð 1989. Kertin brenna niður kom fyrst út í Ungverjalandi 1942, var síðan bönnuð en eftir fall kommúnismans var hún endurútgefin og hefur síðan farið sigurför um alla Evrópu. Sándor Márai er nú einn virtasti og vinsælasti höfundur álfunnar og hefur verið líkt við Thomas Mann og Gabriel García Márquez.

    Kertin brenna niður er áhrifamikil skáldsaga og frábærlega skrifuð; undir kyrru yfirborði bærist söknuður og sársauki, eftirsjá eftir veröld sem var. Hún er hugleiðing um sígilt efni; tryggð og mikla ást, sannleika og blekkingu – sem situr lengi eftir í huga lesanda.

    Hjalti Kristgeirsson þýddi.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Fótspor á himnum

    Fótspor á himnum

    „Á Spáni er maður sem heitir Franco. Ég hef hugsað mér að skjóta hann. Síðan kem ég aftur og elska þig jafn heitt og áður.“ Þannig kveður Olli Spánarfari Unni fögru áður en hann heldur af stað í borgarastyrjöldina á Spáni ásamt vini sínum, risanum Ragnari.

    Fjölskylda Ragnars er í forgrunni þessarar mögnuðu sögu um líf og örlög Íslendinga sem vaxa úr grasi á fyrstu áratugum aldarinnar. Hér er lýst fjölda minnisstæðra og litríkra persóna; Haraldi tómthúsmanni, afa Ragnars, foreldrum hans, Óla ragara og Guðnýju sem gerist dyggur liðsmaður Hvítasunnu- safnaðarins, stórum systkinahópi og lagsbræðrum Ragnars í kommúnisma, Olla Spánarfara og Grími boxara.

    Þetta er saga stoltra einstaklinga sem verður um leið þjóðarsaga. Einar Már hefur sjaldgæf tök á efni sínu, byggir á heimildum og hugarflugi, sameinar raunsæja þjóðlífslýsingu og ljóðrænar stemningar og kryddar með snjöllum tilsvörum og góðum húmor.

    Fótspor á himnum er fyrsta skáldsaga Einars Más Guðmundssonar eftir Engla alheimsins, sem færði honum Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs, og hefur síðan farið sigurför um heiminn.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Eitruð epli

    Eitruð epli

    990 kr.
    Setja í körfu