• Lovestar

    Lovestar

    Alþjóðlega stórfyrirtækið LoveStar hefur komið Íslandi á heimskortið markaðssett dauðann, komið skipulagi á ástina og reist stórfenglegasta skemmtigarð sögunnar í Öxnadal þar sem LoveStar blikkar á bak við ský. Indriði og Sigríður eru handfrjálsir einstaklingar í þessu hátæknivædda samfélagi. Þau telja sig hafa fundið ástina upp á eigin spýtur þar til hræðilegt bréf berst frá stórveldinu. Á sama tíma er LoveStar sjálfur um það bil að gera stærstu uppgötvun allra tíma og stemningsdeildin hefur stórfenglegar áætlanir um hvernig megi fullkomna LoveStar veldið. Og tíminn er naumur

    LoveStar var ein af metsölubókum jólanna 2002. Hún hlaut frábærar viðtökur bæði gagnrýnenda og lesenda, var kjörin skáldsaga ársins af íslenskum bóksölum, fékk Menningarverðlaun DV í bókmenntum og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Þau verðlaun hlaut Andri Snær árið 2000 fyrir Söguna af bláa hnettinum, sem komið hefur út víða um heim.

    „Rosalega skemmtileg, mjög fyndin og frumleg hugsun. Ég hafði mikla ánægju af því að lesa þessa bók.“
    Súsanna Svavarsdóttir, Ísland í bítið

    990 kr.
    Setja í körfu