• Koparakur

    Koparakur

    Koparakur er níunda smásagnasafn Gyrðis Elíassonar og það fyrsta frá því að verðlaunasafnið Milli trjánna kom út, en fyrir þá bók hlaut Gyrðir Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2011. Safnið hefur að geyma 32 ólíkar sögur, en þó er heildarsvipur verksins markaður skýrum höfundareinkennum.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Jón úr Vör - Ljóðasafn

    Jón úr Vör – Ljóðasafn

    Heildarútgáfa af ljóðum Jóns úr Vör. Skáldið Jón úr Vör (1917-2000) kvaddi sér hljóðs ungur að árum og setti nýjan svip á íslenska ljóðagerð um miðbik 20. aldar. Tvítugur gaf hann út fyrstu ljóðabók sína, Ég ber að dyrum, en með tímamótaverkinu Þorpinu (1946) varð hann þjóðkunnur. Eftir það sendi hann frá sér mörg verk og síðasta ljóðabókin, Gott er að lifa (1984), var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Hann var helsti forkólfur raunsæis, undanfari atómskáldanna og áhrifaskáldið þegar horft er til ljóða þeirra sem síðar komu fram á sjónarsviðið. Ljóðasafnið hefur að geyma öll útgefin ljóð Jóns úr Vör. Ferill hans spannaði hálfa öld og bækurnar urðu 12 talsins. Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson ritar greinargóðan inngang um ævi og störf skáldsins.

    8.990 kr.
    Setja í körfu