
Speglahúsið
1.990 kr.Miðaldra hárgreiðslukonan Rósa leggur skærin á hilluna, flytur austur í Mjóafjörð og kemur á fót óvenjulegri ferðaþjónustu. Meðan ferðamenn setja sig í spor Lísu, sem lá lömuð þar um miðja síðustu öld, bakar Rósa fyrir kaffihúsið og hugsar til ömmu sinnar sem sá um Lísu og heimilið.
Mögnuð saga frá höfundi Hansdætra.

Dúkkuverksmiðjan (notuð)
1.990 kr.Stína og Grímur láta drauminn rætast og opna veitingastað í afskekktum firði fyrir vestan. Brátt er Dúkkuverksmiðjan orðin hjarta Salteyrar og það eina sem skyggir á gleðina er barnleysið. Þegar dóttirin langþráða loksins birtist reynir hún mjög á ástríka foreldrana, enda er stúlkan eins og lítill hvirfilbylur; eirðarlaus, uppátækjasöm og þjökuð af martröðum.
Milla litla og Reynir besti vinur hennar vaxa úr grasi í öruggum faðmi þorpsins umkringd himinháum fjöllum og óblíðum náttúruöflum. Samband þeirra er afar náið en þegar þau stálpast kemst ástin í spilið og flækir málin svo um munar. En úr fjarlægð fylgist dularfullur maður með Millu og lúrir á leyndarmáli sem mun umturna öllu.
Júlía Margrét Einarsdóttir er sögumaður af guðs náð, í senn smellin og einstaklega næm á mannfólkið í öllum sínum breyskleika. Í þessari þriðju skáldsögu sinni færir hún okkur heilt þorp – segir sögu íbúanna á hlýlegan og nostalgískan hátt án þess að gefa nokkurn afslátt af stóru spurningunum um ástina, lífið og dauðann.

Ósmann
4.990 kr.Um aldamótin 1900 voru mörg stórfljót landsins enn óbrúuð og fólk reiddi sig víða á ferjumenn til þess að komast yfir illfær og óútreiknanleg fallvötnin. Einn þeirra var Jón Ósmann sem flutti menn og skepnur yfir Héraðsvötn um fjögurra áratuga skeið. Jón var tröll að burðum, stórtækur sel- og fiskveiðimaður, guðsmaður, drykkjumaður og annálað skáld. En öðru fremur var hann mannvinur með meyrt hjarta sem sá lengra en nef hans náði. Örlögin fóru óblíðum höndum um þennan einstaka karakter og hann lést fyrir aldur fram.
Ósmann er skáldsaga byggð á ævi Jóns Magnússonar, ferjumanns í Skagafirði. Frásögnin er feiknavel skrifuð, hjartnæm og heillandi – sannkallaður yndislestur.
Joachim B. Schmidt (1981) er fæddur og uppalinn í Sviss en hefur búið á Íslandi í nær tvo áratugi. Hann skrifaði sig inn í hjörtu lesenda með bókum sínum um Kalmann á Raufarhöfn en þær hafa verið þýddar á fjölda tungumála og báðar hlotið ýmsar tilnefningar og verðlaun.
Bjarni Jónsson þýddi.
Útreiðartúrinn
4.990 kr.Útreiðartúrinn er áhrifarík samtímasaga með djúpar rætur í fortíðinni. Þetta er saga af flóknu feðgasambandi og af vináttu sem ekki er öll þar sem hún er séð; ljúfsárt og heillandi ferðalag um gamlar og nýjar slóðir.
Sævar er myndskreytir og nýfluttur með fjölskyldu sína út á Álftanes, þar sem hann sækir myndefni sitt í lífríki fjörunnar. Hann kann strax vel við sig í kyrrðinni og náttúrufegurðinni en Pétur, sonur hans á unglingsaldri, er ósáttur við breytinguna og lengur að sætta sig við nýtt umhverfi. Pétur er mátulega búinn að eignast vini og farinn að blómstra þegar hópur drengja gerir fólskulega árás á þá félagana að kvöldlagi og slasar besta vin hans.
Lögreglan tekur í kjölfarið við rannsókn málsins en lítið gengur að upplýsa það. Sævar er bugaður af áhyggjum af syni sínum en árásin rifjar auk þess bæði upp tregablandna sumardvöl Sævars sjálfs hjá afa sínum og ömmu á nesinu á níunda áratugnum og morðmál frá 19. öld sem forfaðir hans var flæktur í. Þá skýtur skyndilega upp kollinum á netinu myndband af árás drengjanna og málið tekur óvænta og óhugnanlega vendingu.


Voðaverk í Vesturbænum
990 kr.Hver ræðst á dreng á grunnskólaaldri og skilur hann eftir illa meiddan í hjólageymslu fjölbýlishúss við Tómasarhaga? Svoleiðis ráðgátu er augljóslega ekki hægt að treysta lögreglunni einni til að leysa og hin nýstofnaða Vesturbæjarvakt, með Eddu í broddi fylkingar, tekur málið upp á sína arma. En fleiri þurfa á Eddu að halda. Stúlku í nágrenninu berast dularfullar sendingar og samband Viktors og Snorra er komið í háaloft. Það er því í nógu að snúast fyrir eiturhressan eftirlaunaþega.
Voðaverk í Vesturbænum er sjötta bókin um Eddu á Birkimelnum og glímu hennar við flókin saka- og fjölskyldumál.
Jónína Leósdóttir hefur skrifað tvær vinsælar glæpasagnaseríur, allt hörkuspennandi sögur sem kitla hláturtaugarnar og ríghalda frá upphafi til enda.

Maðurinn sem Ísland elskaði
1.290 kr.Paul Gaimard átti tvær heimsreisur að baki þegar hann kom eins og stormsveipur til Íslands sumrin 1835 og 1836. Hér stýrði hann mestu vísindaúttekt sem gerð hafði verið á þessari eyju sem fáir þekktu og lét teikna myndir sem gefa einstaka innsýn í lífið á Íslandi á þessum tíma. Gaimard vann hug og hjörtu landsmanna með því að læra íslensku og sýna þeim einlægan áhuga. En þrátt fyrir að hafa verið þekktur maður á sinni tíð eru bæði hann og leiðangrar hans að mestu gleymdir.
Í Maðurinn sem Ísland elskaði er saga þessara stórmerku leiðangra rakin og jafnframt sagt frá ævintýralegu lífshlaupi á tímum mælinga heimsins. Byggt er á ýmsum gögnum sem aldrei hafa komið fyrir almenningssjónir áður, þar á meðal dagbókum Gaimards, og dregin upp ljóslifandi mynd af fólki, stöðum og heimssögunni á fyrri hluta nítjándu aldar. Um eitt hundrað myndir prýða bókina.
Árni Snævarr lærði sögu í Frakklandi og á Íslandi, stundaði blaðamennsku um árabil og hefur undanfarin ár unnið hjá alþjóðastofnunum og er nú búsettur í Brussel. Við vinnslu bókarinnar kannaði hann frönsk skjalasöfn og heimsótti helstu staði sem við sögu koma á Íslandi og í Frakklandi.

Þykjustuleikarnir
1.490 kr.Í Þykjustuleikunum, nýjustu ljóðabók Antons Helga Jónssonar er okkur boðið í sirkus þar sem fer fram samfelld dagskrá og alls konar persónur, misjafnlega kunnuglegar, eru kynntar til leiks. Ólíkar raddir skiptast á, sumt er fyndið, sumt sorglegt og stundum lætur hryllingurinn á sér kræla. Þessi leikur með gervi og raddir endurspeglast að nokkru í útliti og uppsetningu þessarar nýstárlegu ljóðabókar. Anton Helgi hefur lengi verið í hópi okkar allra vinsælustu skálda, tilfinningaríkur, orðsnjall og uppátækjasamur. Þykjustuleikarnir eru tíunda ljóðabók hans.

Kul
1.990 kr.Una rambar á barmi kulnunar og er send vestur á firði í nýstofnað meðferðarúrræði, Kul. Þar dvelur lítill hópur fólks í þorpi við sjávarsíðuna í svartasta skammdeginu og glímir við það sem Hákon, forsprakki Kuls, segir mikilvægast: að horfast í augu við myrkrið innra með sér. Fyrir vestan fer fortíðin að sækja á Unu, minningar frá æskuárunum í litlu kjallaraíbúðinni með mömmu og Magga bróður.
Þegar hrikta fer í stoðum meðferðarinnar, og ekki síður sjálfsmyndar Unu, tekur allt það sem hefur frosið fast innra með henni að losna úr læðingi og veruleikinn fer á flot.
Kul er fyrsta skáldsaga Sunnu Dísar Másdóttur en áður hefur hún sent frá sér ljóðabókina Plómur sem var tilnefnd til Maístjörnunnar. Sunna er jafnframt ein Svikaskálda sem gefið hafa út fjórar ljóðabækur og skáldsöguna Olíu sem var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Hún starfar ennfremur sem þýðandi, leiðbeinandi í ritlist og bókmenntagagnrýnandi.

Fimm ljóð
5.190 kr.Engin sjoppa er betri
en pylsan sem hún selur.
Segir hún.
Og í þessum sjoppum
er alls staðar seld
sama pylsan.
Alltaf með engu, svarar hann,
og alltaf með öllu.
Eiríkur Örn Norðdahl (f. 1978) er ötull og framsækinn höfundur, búsettur á Ísafirði, og einn af upphafsmönnum skáldahópsins Nýhil. Auk ljóða hefur hann sent frá sér leikrit, ritgerðir, þýðingar og níu skáldsögur. Hann hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir verk sín, meðal annars tilnefningu til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Náttúrulögmálin og Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir Illsku en sú bók var líka tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.
Fimm ljóð er áttunda ljóðabók Eiríks Arnar en átta ár eru liðin frá því að sú síðasta, Óratorrek, kom út.

Við erum ekki morðingjar
1.290 kr.Ung kona skrifar bók sem leggur líf hennar og mannsins sem hún elskar í rúst. Ári seinna fær hún óvænt tækifæri til að segja frá sinni hlið á málinu. En hún hefur bara eina nótt. Og sá sem hlustar er ekki allur þar sem hann er séður. Við erum ekki morðingjar er spennuþrungin skáldsaga um ást, ofbeldi og viðkvæm leyndarmál.
Dagur Hjartarson hlaut tilnefningu til Bókmenntaverðlauna Evrópusambandsins fyrir fyrstu skáldsögu sína, Síðustu ástarjátninguna. Hér sendir hann frá sér bók sem veltir upp áleitnum spurningum og mun koma lesendum á óvart.

Safnið – Ljóð Lindu Vilhjálms
8.490 kr.Ljóðasafn Lindu Vilhjálmsdóttur geymir allar ljóðabækur hennar frá árabilinu 1990‒2022, níu talsins, auk nokkurra ljóða sem birst hafa á öðrum vettvangi eða eru áður óbirt.
Allt frá því að fyrsta bók Lindu, Bláþráður, kom út árið 1990 hafa beinskeytt og meitluð ljóð hennar um samtíð og samfélag, vald og viðhorf, vakið athygli og hreyft við lesendum. Fyrir ljóðabókina Frelsi, sem Linda sendi frá sér árið 2015, var hún tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.
Inngangsorð bókarinnar skrifar Kristín Eiríksdóttir skáld og í bókarlok er viðtal Hauks Ingvarssonar, bókmenntafræðings og skálds, við Lindu þar sem hún segir frá uppvexti sínum og ævi, skáldskap og skoðunum.
