-
Móðurást: Lausnargjaldið
6.990 kr.Móðurást: Lausnargjaldið er fjórða bókin í verðlaunaritröð Kristínar Ómarsdóttur um Oddnýju langömmu sína í Biskupstungum á ofanverðri nítjándu öld. Þessi nýstárlega og djúphugula frásögn hefur heillað lesendur og gagnrýnendur til jafns. Fyrsta bókin, Móðurást: Oddný, fékk Fjöruverðlaunin og sú næsta, Móðurást: Draumþing, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin.
Þegar líður á sólskinssumarið 1878 hleypur galskapur í vinnukonurnar í Bræðratungu og þær setja allt á annan endann. Alþekkt er í sveitinni hvað ábúendur eru skrítnir, þá sérstaklega stúlkur um fermingaraldur. En næm eyru heyra vinda frelsis blása sunnan úr Evrópu og þá er freistandi að fylgja hjarta sínu þótt það geti reynst dýrkeypt. -
Frumbyrjur (árituð kilja)
4.690 kr.Það er aðfangadagur og hjónin á Kölduhömrum búa sig undir jólahaldið. Handan áramóta eiga þau von á sínu fyrsta barni og spennan í kviðnum smitar andrúmsloftið. Snjórinn hleðst upp og vegurinn út úr firðinum hefur ekki enn verið ruddur. Þegar kýrin á bænum tekur sótt hrökkva dyr upp á gátt sem ekki verður lokað.
Frumbyrjur er fimmta skáldsaga Dags Hjartarsonar, sem hlaut tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Ljósagang (2022) og einróma lof fyrir Sporðdreka (2024).
-
Fröken Dúlla (stór kilja)
4.890 kr.Hún ólst upp á Akureyri, kaupmannsdóttir af ástríkri og samheldinni fjölskyldu. Um fermingu flutti hún til Reykjavíkur og fór að vinna á skrifstofu, eins og allar ungar stúlkur dreymdi um. Seinna lærði hún hjúkrun, því hún þráði að líkna hinum sjúku og vinna þjóð sinni gagn. Enn síðar gaf hún út tímarit og bjó til minjagripi með þurrkuðum blómum. Meðal ástvina sinna var hún alltaf kölluð Dúlla.
Í dag er nafn Jóhönnu Knudsen þó einkum þekkt vegna starfa hennar fyrir lögregluna á árum seinni heimsstyrjaldar – jafnvel alræmt. Rannsókn hennar á siðferðisástandinu í Reykjavík hefur verið kölluð umfangsmestu persónunjósnir Íslandssögunnar. Nærgöngular yfirheyrslur hennar yfir stúlkum sem grunaðar voru um samneyti við erlenda hermenn varpa dökkum skugga yfir minningu hennar.
Þessi bók segir sögu Jóhönnu frá því hún fæddist á Papósi í Lóni árið 1897 og þar til hún lést fyrir aldur fram árið 1950. Hver var Dúlla Knudsen og úr hvaða umhverfi spratt hún? Hvernig varð hún sú manneskja – og sú sögupersóna – sem hún varð?
-
Móðurást: Sólmánuður
4.790 kr.Ekkert lát er á veðurblíðunni í Bræðratungu síðsumarið 1878 og sólargeislarnir hleypa fjöri í bæði menn og skepnur. Systurnar Oddný og Setselja, önnur nýfermd og hin ófermd, eru óðum að uppgötva sjálfar sig og máta við hlutverkið sem þeim er ætlað. En þegar það hlutverk verður stúlku um megn, er gott að eiga síðbuxur í felum undir steini.
Einstakir hversdagstöfrar leika um skáldaða frásögn Kristínar Ómarsdóttur af uppvexti langömmu sinnar í Biskupstungum á ofanverðri nítjándu öld. Móðurást: Sólmánuður er þriðja bókin í röðinni, en sú fyrsta, Móðurást: Oddný, hlaut Fjöruverðlaunin og önnur bókin, Móðurást: Draumþing, fékk Íslensku bókmenntaverðlaunin.
-
-
-
-
-
Aksturslag innfæddra
1.990 kr.Í þessari bók birtast sjö smásögur sem allar eru sprottnar úr raunveruleikanum. Við sögu kemur fjölbreyttur hópur fólks sem lesendur kannast hugsanlega við. Sögurnar segja frá stuttum tímabilum eða einstökum viðburðum í lífi sögupersóna, eða lýsa jafnvel heilli ævi.
Hér er greint frá atburðum sem gætu virst hversdagslegir og smávægilegir við fyrstu sýn en ef lesið er á milli línanna endurspegla þeir stærri og flóknari hliðar tilverunnar.
Þórdís Gísladóttir hefur þýtt og skrifað fjölda barna- og unglingabóka, ljóðabækur, sjónvarpshandrit og skáldsögu fyrir fullorðna. Hún hefur getið sér orð fyrir að skrifa leikandi léttan texta sem einkennist af orðfimi og húmor og varpar nýstárlegu ljósi á hvunndaginn og samtímann. Verk hennar höfða til fjölbreytts hóps lesenda á öllum aldri.
Þórdís hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2010 fyrir fyrstu ljóðabók sína, Leyndarmál annarra, og hefur síðan hlotið fjölda verðlauna og tilnefninga fyrir frumsamin og þýdd verk.
-
-
Drottningarnar í Garðinum
4.190 kr.Hópur kynlífsverkakvenna er á næturrölti í Sarmiento-garðinum í Córdoba, Argentínu. Þær heyra barnsgrát í nóttinni. Encarna frænka, leiðtogi þeirra, ryður sér leið í gegnum skógarþykknið og finnur barn, sem hún tekur að sér, eins og hún hefur tekið margar útskúfaðar konur að sér, þar á meðal Camilu. Í bleika húsinu hennar Encörnu frænku finnst skjól fyrir daglegum ógnum, sjúkdómum og ofbeldi af hálfu kúnna, lögregluþjóna og ástmanna. Mállaus kona umbreytist í fugl, hauslaus maður flýr stríð og Camila berst fyrir að ráða lífi sínu og kyngervi sjálf. Raunveruleikinn er sveipaður töfrum drungalegs ævintýris. Drottningarnar í garðinum hefur verið þýdd á ótal tungumál og unnið til margra verðlauna. Höfundurinn Camila Sosa Villada er einnig leikkona og baráttukona.
-
Eldarnir
1.290 kr.Skáldin mega hjala um ástina, en ég þekki hana, hef séð hana að verki. Hún er ekkert annað en náttúruhamfarir.
Jarðskjálftar skekja Reykjanesskaga, eldfjöllin eru vöknuð til lífsins eftir 800 ára hlé. Enginn þekkir þau betur en eldfjallafræðingurinn Anna Arnardóttir, forstöðumaður Jarðvísindastofnunar, sem þarf að takast á við stærsta verkefni ferilsins við stjórn almannavarna. En áferðarfallegt og hamingjuríkt líf hennar lætur ekki lengur að stjórn.
Eldarnir eru þriðja skáldsaga Sigríðar Hagalín Björnsdóttur. Fyrri bækur hennar, Eyland og Hið heilaga orð, hafa vakið verðskuldaða athygli og verið þýddar á fjölda tungumála.