
Bréf til Láru – Afmælisútgáfa með skýringum
4.690 kr.„Bréf til Láru hefur kannski haft meiri áhrif en nokkur önnur bók, sem rituð hefur verið á íslenska tungu. … Hún verkaði eins og sprenging, sem molaði niður ýmsar villukenningar og úreltar hugmyndir. Fyrir þá, sem sprenging þessi var lausn, var hún gleðiboð – skapur, en [fyrir hina], sem fundu stuðning í villukenningunum og hinum úreltu hugmyndum, var hún hræðileg bók og höfundurinn vitlaus maður.“
Þannig lýsir Þórbergur Þórðarson bók sinni, Bréfi til Láru, sem kom fyrst út árið 1924 en oft síðan. Bókin olli miklu fjaðrafoki og deilum en boðaði um leið nýja tíma í íslenskum bókmenntum. Ýmsum sveið undan hárbeittum skotum höfundar en þó er það ekki síst stórkostleg sjálfslýsing hans sem gerir Bréf til Láru að sígildri bók. Óborganlegur húmor Þórbergs nýtur sín til fulls í ádeilum hans og skopi sem hann beinir í allar áttir og ekki síst að sjálfum sér.
Þetta einstæða meistaraverk kemur nú út í nýrri útgáfu á hundrað ára afmæli bókarinnar. Soffía Auður Birgisdóttir ritar inngang og tekur saman ítarlegar skýringar á mönnum og málefnum sem Þórbergur víkur að og opnar nýjum lesendum þannig dyr inn í galskapinn.

Dauði skógar
1.290 kr.Ég ímynda mér að ég þjóti á mótorhjóli í gegnum nóttina. Að ég keyri út úr bænum og láti mig hverfa inn í myrkrið. Reyndar er ég svo gott sem horfinn. Þess vegna fór ég til Spánar, til að hverfa.
Það hefur rignt linnulaust í marga daga þegar skógurinn rennur niður hlíðina og setur allt af stað í lífi landeigandans og fjölskylduföðurins Magnúsar. Litlu seinna koma sprengjurnar í ljós.
Dauði skógar er launfyndin og margræð saga um það þegar hversdagurinn fer á hvolf og dauðinn ber að dyrum. Fyrri skáldsögur Jónasar Reynis Gunnarssonar, Millilending og Krossfiskar, vöktu mikla athygli og var sú fyrri tilnefnd til Menningarverðlauna DV. Fyrir ljóðabókina Stór olíuskip hlaut hann Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar og Maístjörnuna fyrir Þvottadag.


Þetta rauða, það er ástin
1.290 kr.Elsu langar að mála og að því stefnir hún af miklum metnaði þótt fyrirmyndirnar séu fáar um miðja 20. öld. Hún stundar framhaldsnám í París þar sem hana dreymir um að komast í einkatíma hjá frægasta kennara borgarinnar og sýna verk sín í flottustu galleríunum. En það krefst fórna. Þetta rauða, það er ástin er áhrifarík skáldsaga um unga konu sem berst fyrir því að láta drauma sína rætast en ber eftir það sár sem hún getur ekki nefnt við nokkurn mann. Ragna Sigurðardóttir hefur hlotið verðskuldaða athygli fyrir sögur sínar, nú síðast sagnasafnið Vetrargulrætur.

Sofðu ást mín
1.290 kr.Barn í Lapplander-jeppa leitar að griðastað fyrir randaflugu uppi á hálendinu, ungur maður leitar að orði sem nær yfir ástina, nýbakaður faðir fer í pílagrímaferð til Lególands og allir draumar rætast þegar fjárfestir kaupir sér risaeðlu og heldur einkapartí með Duran Duran.
Sofðu ást mín geymir sjö raunsæjar og persónulegar sögur eftir Andra Snæ Magnason. Saman mynda þær einlægan streng sem fyllir upp í óvenju fjölbreytt höfundarverk hans.
Bækur Andra Snæs hafa notið gríðarlegra vinsælda og unnið til verðlauna innan lands og utan. Fyrir sléttum tuttugu árum sendi hann frá sér smásagnasafnið Engar smá sögur sem enn nýtur mikilla vinsælda. Hér koma loksins nýjar smásögur eftir þessa einstöku rödd í íslenskum bókmenntum.



