• Pensilskrift

    Pensilskrift

    Tímamótaverk með hátt í 200 smáprósum sem rúma ótal persónur, þankabrot og atburði með fjölþættum spunaþráðum. Upphaflega gefin út ásamt systurbókinni, Þöglu myndunum, haustið 2022 og hlaut frábærar viðtökur en seldist fljótlega upp. Þessi nýja útgáfa er hluti af ritsafni Gyrðis Elíassonar.

    4.890 kr.
    Setja í körfu
  • Þöglu myndirnar

    Þöglu myndirnar

    Margradda og magnað verk! Vel á annað hundrað smáprósar, þar sem birtist fjöldi persóna og alls kyns óvænt atvik eiga sér stað. Ásamt systurbókinni, Pensilskrift, sem kom samtímis út haustið 2022, hlaut bókin afar góðar viðtökur og seldist fljótlega upp. Þessi nýja útgáfa er hluti af ritsafni Gyrðis Elíassonar.

    4.890 kr.
    Setja í körfu
  • Ljóðasafn IV – Gyrðir Elíasson

    Ljóðasafn IV – Gyrðir Elíasson

    Fjórða bindið af ljóðasafni Gyrðis geymir 3 bækur sem hafa verið ófáanlegar um langt skeið en eru nú saman komnar í einu lagi í vandaðri heildarútgáfu á verkum skáldsins. Hér birtast Upplitað myrkur, Nokkur almenn orð um kulnun sólar og Hér vex enginn sítrónuviður. Ómissandi verk í safn allra bókaunnenda.

    7.390 kr.
    Setja í körfu
  • Ljóðasafn III – Gyrðir Elíasson

    Ljóðasafn III – Gyrðir Elíasson

    Þrjár einstakar ljóðabækur sem hafa verið ófáanlegar um langt árabil: Indíánasumar (1996), Hugarfjallið (1999) og Tvífundnaland (2003). Það er mikill fengur að þessari nýju útgáfu sem er hluti af heildarsafni verka skáldsins. Ómissandi í safn allra bókaunnenda.

    7.390 kr.
    Setja í körfu
  • Smásögur I – 1988-1993

    Smásögur I – 1988-1993

    Þrjú fyrstu smásagnasöfn höfundarins samankomin, 49 sögur alls og sumar þeirra löngu orðnar klassík í íslenskum bókmenntum. Bréfbátarigningin (1988), Heykvísl og gúmmískór (1991) og Tregahornið (1993). Hluti af nýrri og vandaðri heildarútgáfu verka skáldsins sem allir bókaunnendur þurfa að eignast.

    4.890 kr.
    Setja í körfu
  • Sorgarmarsinn

    Sorgarmarsinn

    Hér segir af manni sem öðrum þræði fæst við textagerð en hallar sér þó aðallega að tónlistinni og hefur fundið sér athvarf í litlu þorpi á Austfjörðum. Táknræn og sérstæð frásögn af sköpun, orðleysi og einskonar pattstöðu í flóknu samspili lífs og listar. Þessi nýja útgáfa er hluti af heildarsafni verka Gyrðis Elíassonar.

    Lokahluti þríleiksins sem hófst með Sandárbókinni og var síðan fram haldið í Suðurglugganum, en allar fjalla sögurnar um líf og störf listamanna.

    4.890 kr.
    Setja í körfu
  • Ef ég væri birkitré

    Ef ég væri birkitré

    Hildur Hákonardóttir vefur hér saman persónulegar hugleiðingar, náttúrufræði og listræna sýn á birkið sem hefur mótað íslenskt landslag og menningu allt frá landnámi. Með næmu auga listamannsins og virðingu fyrir náttúrunni leiðir hún lesandann inn í heim þar sem mörk manns og náttúru eru óljós.

    Þetta er bók fyrir þá sem þrá að tengjast náttúrunni á nýjan hátt og finna innblástur með því að ímynda sér: Hvað ef ég væri birkitré?

    4.590 kr.
    Setja í körfu
  • Horfumst í augu

    Horfumst í augu

    Ljóðin í þessari sterku og áhrifamiklu bók orti höfundur í minningu eiginmanns síns, Einars Eyjólfssonar (1956–2015). Ljóðin eru hjálpartæki höfundar til að syrgja og leið til að skilja söguna og bæta lífið. Skynjun og tilfinningar eru hornsteinar daglegs lífs og kærleikurinn vísar alltaf veginn.

    Horfumst í augu er önnur ljóðabók Sigrúnar Ásu Sigmarsdóttur (f.1957) sem sendi frá sér bókina Siffon og damask 2018.

    4.390 kr.
    Setja í körfu
  • Vöggudýrabær

    Vöggudýrabær

    Vöggudýrabær er skáldleg umfjöllun um þær konur sem nauðbeygðar sendu afkvæmi sín á vöggustofur og þau börn sem voru vistuð þar framan af barnæskunni.
    Kristján Hrafn Guðmundsson yrkir hér af skáldlegu innsæi, húmor og þekkingu um hlutskipti móður sinnar og ömmu og bregður um leið birtu á þjóðfélag þessara tíma og tíðaranda.

    1.490 kr.
    Setja í körfu
  • Hóras prins af Hákoti

    Hóras prins af Hákoti

    Uppgjafabóndinn Hóras gerist róni í Reykjavík á sjöunda áratug 20. aldar. Hann kemur víða við sögu og er um tíma formaður 17. nefndar Reykjavíkurborgar og síðar forsætisráðherra en stefnumálin eru vafasöm og sögulok ill. Hóras prins af Hákoti er drepfyndinn harmleikur í bundnu máli, ortur af galsafenginni ófyrirleitni sem kankast á við klassískan skáldskap fyrri alda.

    4.390 kr.
    Setja í körfu
  • Áttaskil - Ljóð og lausavísur

    Áttaskil – Ljóð og lausavísur

    Hér birtast ljóð og lausavísur úr fórum skáldsins og kvæðakonunnar góðkunnu, en þar eru náttúruljóð í fyrirrúmi þótt ýmislegt annað komi við sögu. Í eftirmála segir Ragnar Ingi Aðalsteinsson frá Vaðbrekku m.a.: Þegar ljóð hennar eru lesin er eins og landið Ísland, með öllum sínum dyntum, veðurfarssveiflum og skapbrigðum hafi valið hana til að túlka sjónarmið sín.

    4.890 kr.
    Setja í körfu
  • Geðhrærivélar

    Geðhrærivélar

    Ljóðskáldið Árni Jakob Larsson er fæddur í Reykjavík árið 1943. Fyrsta bók hans, Uppreisnin í grasinu kom út árið 1972. Árni hefur í áratugi notið viðurkenningar sem rithöfundur og ljóðskáld. Geðhrærivélar er sextánda bók höfundar.

    5.990 kr.
    Setja í körfu
  • Brimurð

    Brimurð

    Brimurð er áttunda bók höfundar. Ástvinamissir er ávallt sár, hvort heldur sá sem hverfur til annarrar víddar hefur tvo fætur eða fjóra. En ástin deyr ekki, hún nær yfir allar víddir, því að elska er að lifa.

    Brimurð er tileinkuð öllum dýravinum og eigendum þeirra, dýrunum, sem auðga lífið jafnt að fegurð, dýpt og gleði.

    „Með síðustu tveimur ljóðabókum sínum, Varurð og Einurð, hefur Draumey Aradóttir markað sér bás meðal áhugaverðustu ljóðskálda á Íslandi.“
    Soffía Auður Birgisdóttir

    4.390 kr.
    Setja í körfu
  • Varurð

    Varurð

    Varurð er sjötta bók höfundar. Fimm ljóðanna hafa þegar hlotið verðlaun og viðurkenningar. Í bókinni býðst lesendum að reima á sig skóna og halda með höfundi í ljóðför um oddhvassar lendur óttans; allt frá upptökum hans að óumflýjanlegum átökunum við hann. Nestuð áræði, einlægni og varurð er áfangastaðurinn lang­þráð frelsið, friðurinn og fögnuðurinn sem bíður þeirra sem fletta af sér öllu því sem þeir töldu sig vera og kasta sér kviknaktir út í ógn­vekjandi eldskírnina.

    3.790 kr.
    Setja í körfu
  • Einurð

    Einurð

    Einurð er sjöunda bók höfundar. Lesanda er hér boðið í ljóðför um hugarheim barns – og síðar fullorðins einstaklings – sem ávarpar móður sína allt frá þeim degi og þeirri nóttu sem eitt líf slokknar og annað kviknar. Þar sem form og formleysi mætast. Þar sem hughrif, kenndir og geðhrif móta einstaklinginn á viðkvæmasta skeiði hans – í móðurlífinu. Lokaljóð bókarinnar, sem er í senn meginstef og niðurstaða verksins, hlaut fyrstu verðlaun í árlegri ljóðasamkeppni Júlíönu – hátíð sögu og bóka 2023.

    3.790 kr.
    Setja í körfu
  • Fado Fantastico

    Fado Fantastico

    3.790 kr.
    Setja í körfu
  • Milli trjánna

    Milli trjánna

    Milli trjánna er safn 47 fjölbreyttra og meitlaðra smásagna. Bókin hefur hlotið einróma lof og færði höfundinum Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2011. Í kjölfarið hafa verk hans verið þýdd og gefin út víða um lönd og njóta vaxandi vinsælda og virðingar. Þessi nýja útgáfa er hluti af heildarsafni verka Gyrðis.

    4.890 kr.
    Setja í körfu
  • Suðurglugginn

    Suðurglugginn

    Hér tekur Gyrðir upp þráðinn þar sem frá var horfið í Sandárbókinni og spinnur nýja frásögn um hlutskipti listamanns, í þetta sinn er það rithöfundur sem dvelur í sumarhúsi í grennd við lítið þorp og glímir við að skrifa skáldsögu, verk sem neitar stöðugt að taka á sig þá mynd sem höfundurinn leitast við að skapa. Þessi útgáfa er hluti af heildarsafni verka Gyrðis.

    4.890 kr.
    Setja í körfu
  • Billy Budd, sjóliði

    Billy Budd, sjóliði

    Billy Budd hefur stundum verið kölluð besta stutta skáldsaga sem skrifuð hefur verið og er jafnan talin meðal öndvegisverka bandarískra bókmennta.

    Í meistaralega myndríkum stíl segir Melville áhrifamikla dæmisögu um sakleysi og fólsku í mannheimum þar sem hreinlyndur sjóliði verður fórnarlamb úthugsaðra vélabragða.

    Billy Budd var síðasta stórvirki bandaríska rithöfundarins Hermans Melville sem skrifaði eina frægustu skáldsögu heimsbókmenntanna, Moby Dick. Bókin kom fyrst út að höfundinum látnum árið 1924 og kemur nú í fyrsta sinn fyrir sjónir íslenskra lesenda hundrað árum síðar.

    Baldur Gunnarsson íslenskaði.

    Herman Melville (1819–1891) fæddist í New York. Eftir lát föður síns hætti hann í skóla og vann ýmis störf uns hann fór á sjóinn nítján ára gamall. Á næstu árum lenti hann í mörgum ævintýrum á hvalveiðiskipi í suðurhöfum sem hann lýsti í bókum sínum, svo sem Typee, Omoo, White-Fang, The Confidence-Man og stórvirkinu Moby Dick. Hann sinnti ýmsum störfum meðfram ritstörfunum, lengst af sem tollvörður í New York.

    Baldur Gunnarsson er cand.mag. í ensku og enskum bókmenntum frá Háskóla Íslands og MA í bandarískum bókmenntum frá State University of New York at Stony Brook. Baldur kenndi klassískar bókmenntir um árabil við Háskóla Íslands. Eftir hann liggur fjöldi skáldsagna og ljóðasafn.

    4.990 kr.
    Setja í körfu
  • Með minnið á heilanum

    Með minnið á heilanum

    Hvernig sér lítil sveitastelpa á árunum kringum 1960 veröldina sína ? Í þessari bók leyfir Þórhildur Ólafsdóttir, rithöfundur og þýðandi, barninu sem hún var að fá orðið, segja frá fólki, dýrum, húsum og náttúru í fjarlægum heimi. Barnið horfir á, drekkur í sig myndir, atburði, orð og sögur sem móta það fyrir lífstíð. Skynjunin birtist milliliðalaust og frásagnirnar ná að fanga almennan veruleika sem nær langt út fyrir stað og stund frásagnanna.

    Með minnið á heilanum er óvenjuleg minningabók. Minnið er hverfult og tilviljanakennt enda leitast höfundur alls ekki við  að finna eitthvað sem kalla mætti sannleika. Með hjálp barnsins er frekar reynt að uppgötva og nálgast, draga litlu stelpuna og nærumhverfi hennar upp úr hjúpi gleymskunnar sem endanlega mun hylja allt.

    Ólöf Þórhildur Ólafsdóttir lauk doktorsprófi í frönskum bókmenntum við Háskólann í Orléans í Frakklandi árið 1982. Hún var lektor og síðar dósent í frönsku við Háskóla Íslands í nokkur ár. Frá árinu 1988 hefur hún verið búsett í Strasbourg í Frakklandi þar sem hún starfaði við Evrópuráðið í aldarfjórðung.

    4.490 kr.
    Setja í körfu