-
Það kemur alltaf nýr skafl í fjallið
6.390 kr.Eyþór Árnason hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir fyrstu ljóðabók sína árið 2009. Það kemur alltaf nýr skafl í fjallið er áttunda ljóðabók hans.
Í glugganum stendur
hvít símakúla sem Jónas frá Hriflu skrúfaði í
baðstofuþilið á bænum í heiðinniÉg held að búálfurinn
hafi fylgt með kúlunni suður
því þegar ég legg eyrað að postulíninu
heyrist stundum í honum tuðiðÉg segi honum að hafa sig hægan
og bið ömmu afsökunar á að liggja
á línunni enda sé ég bara
að forvitnast um sprettu í grasaheiðinni -
Fálmandi hendur í fjöru
6.390 kr.Bjarni M. Bjarnason hefur sent frá sér á þriðja tug bóka og hafa þær meðal annars hafa komið út á færeysku, arabísku, þýsku og ensku. Verk hans eru margverðlaunuð og nú síðast var Dúnstúlkan í þokunni tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Óþreytandi öldurnar,
eins og verið sé að hrista sæng í fjörunni,
til að breiða hana yfir rúmið,
það bara tekst ekki,
og þess vegna er reynt aftur,
og aftur -
Þegar við lifum
7.990 kr.Jakob stendur á tímamótum. Honum vegnar vel í starfi, en sambandið við eiginkonuna er orðið erfiðara en áður, og hann hefur fjarlægst stálpaðan son sinn. Þegar sagan hefst dag einn síðla vetrar eru þau hjónin á leið í bústað austur í sveitum, og tíðindalaus helgi framundan. En atburður, sem gerist þann sama dag boðar harkaleg hvörf í lífi hans.
Áleitnar spurningar vakna.
Allt frá því Sigurjón Magnússon sendi frá sér skáldsöguna Góða nótt, Silja árið 1997 hefur hann verið meðal okkar fremstu skáldsagnahöfunda. Skáldsaga hans um Kristmann Guð munds son, Borgir og eyðimerkur, vakti mikla athygli og saga hans Endimörk heimsins var tilnefnd til Íslensku bók mennta verðlaunanna. Þegar við lifum er tíunda skáldsaga Sigurjóns.
-
Hlaðan (kilja)
5.490 kr.Bergsveinn Birgisson ákveður að endurbyggja hlöðu forfeðra sinna á Ströndum sem er komin að hruni. Það fær hann til þess að hugsa um heiminn og stöðu mannsins í honum. Hann fer að skrifa bréf til dóttur sinnar, rifjar upp hugmyndir manna í fortíðinni um hvernig best sé að haga lífinu, um leið og hann tekst á við hin daglegu verkefni við endursmíð hlöðunnar, og freistar þess sömuleiðis að horfa til framtíðar. Þá fléttast Strandamenn, lífs og liðnir, inn í frásögnina, sumir koma í heimsókn en aðrir rétta hjálparhönd. Útkoman verður því ferðalag um tíma og rúm, andlegt sem raunverulegt, í bók sem er engri annarri lík.
Bergsveinn Birgisson er einn vinsælasti og virtasti rithöfundur landsins og bækur hans koma út um allan heim. Meðal þeirra má nefna verðlaunabækurnar Leitin að svarta víkingnum, Þormóður Torfason, Landslag er aldrei asnalegt og Svar við bréfi Helgu.
„Stórmerkileg bók um afar hraða og afdrifaríka samfélagsþróun og enginn ætti að láta fram hjá sér fljóta ólesna, einkar lipurlega skrifuð.“
Sölvi Sveinsson, Morgunblaðið„Las af áfergju, skrifað af yfirvegun og ekki predik andi, hugsa að ég lesi ekki bók sem hefur meiri áhrif á mig í ár en þessi.“
Sverrir Norland, Kiljan„Rosalega skemmtilegur leiðangur.“
Þorgeir Tryggvason, Kiljan„Bókin er skrifuð af miklu mannviti og fádæma yfirsýn eins og vænta mátti, alvarleg tilraun um manninn, leit að mennskunni og því hvernig má á ný tjasla því saman sem brotið er og sundrað.“
Guðmundur Andri Thorsson„Tvímælalaust áhugaverðasta bók þessa hausts.“
Þröstur Helgason, Bændablaðið„Bók sem á erindi við okkur öll … óskandi væri að allir ráðamenn þjóðarinnar fengju þessa bók og læsu.“
Gauti Kristmannsson, Rúv -
Pensilskrift
4.890 kr.Tímamótaverk með hátt í 200 smáprósum sem rúma ótal persónur, þankabrot og atburði með fjölþættum spunaþráðum. Upphaflega gefin út ásamt systurbókinni, Þöglu myndunum, haustið 2022 og hlaut frábærar viðtökur en seldist fljótlega upp. Þessi nýja útgáfa er hluti af ritsafni Gyrðis Elíassonar.
-
Þöglu myndirnar
4.890 kr.Margradda og magnað verk! Vel á annað hundrað smáprósar, þar sem birtist fjöldi persóna og alls kyns óvænt atvik eiga sér stað. Ásamt systurbókinni, Pensilskrift, sem kom samtímis út haustið 2022, hlaut bókin afar góðar viðtökur og seldist fljótlega upp. Þessi nýja útgáfa er hluti af ritsafni Gyrðis Elíassonar.
-
Ljóðasafn IV – Gyrðir Elíasson
7.390 kr.Fjórða bindið af ljóðasafni Gyrðis geymir 3 bækur sem hafa verið ófáanlegar um langt skeið en eru nú saman komnar í einu lagi í vandaðri heildarútgáfu á verkum skáldsins. Hér birtast Upplitað myrkur, Nokkur almenn orð um kulnun sólar og Hér vex enginn sítrónuviður. Ómissandi verk í safn allra bókaunnenda.
-
Ljóðasafn III – Gyrðir Elíasson
7.390 kr.Þrjár einstakar ljóðabækur sem hafa verið ófáanlegar um langt árabil: Indíánasumar (1996), Hugarfjallið (1999) og Tvífundnaland (2003). Það er mikill fengur að þessari nýju útgáfu sem er hluti af heildarsafni verka skáldsins. Ómissandi í safn allra bókaunnenda.
-
Smásögur I – 1988-1993
4.890 kr.Þrjú fyrstu smásagnasöfn höfundarins samankomin, 49 sögur alls og sumar þeirra löngu orðnar klassík í íslenskum bókmenntum. Bréfbátarigningin (1988), Heykvísl og gúmmískór (1991) og Tregahornið (1993). Hluti af nýrri og vandaðri heildarútgáfu verka skáldsins sem allir bókaunnendur þurfa að eignast.
-
Sorgarmarsinn
4.890 kr.Hér segir af manni sem öðrum þræði fæst við textagerð en hallar sér þó aðallega að tónlistinni og hefur fundið sér athvarf í litlu þorpi á Austfjörðum. Táknræn og sérstæð frásögn af sköpun, orðleysi og einskonar pattstöðu í flóknu samspili lífs og listar. Þessi nýja útgáfa er hluti af heildarsafni verka Gyrðis Elíassonar.
Lokahluti þríleiksins sem hófst með Sandárbókinni og var síðan fram haldið í Suðurglugganum, en allar fjalla sögurnar um líf og störf listamanna.
-
Ef ég væri birkitré
4.590 kr.Hildur Hákonardóttir vefur hér saman persónulegar hugleiðingar, náttúrufræði og listræna sýn á birkið sem hefur mótað íslenskt landslag og menningu allt frá landnámi. Með næmu auga listamannsins og virðingu fyrir náttúrunni leiðir hún lesandann inn í heim þar sem mörk manns og náttúru eru óljós.
Þetta er bók fyrir þá sem þrá að tengjast náttúrunni á nýjan hátt og finna innblástur með því að ímynda sér: Hvað ef ég væri birkitré?
-
Horfumst í augu
4.390 kr.Ljóðin í þessari sterku og áhrifamiklu bók orti höfundur í minningu eiginmanns síns, Einars Eyjólfssonar (19562015). Ljóðin eru hjálpartæki höfundar til að syrgja og leið til að skilja söguna og bæta lífið. Skynjun og tilfinningar eru hornsteinar daglegs lífs og kærleikurinn vísar alltaf veginn.
Horfumst í augu er önnur ljóðabók Sigrúnar Ásu Sigmarsdóttur (f.1957) sem sendi frá sér bókina Siffon og damask 2018.
-
Vöggudýrabær
1.490 kr.Vöggudýrabær er skáldleg umfjöllun um þær konur sem nauðbeygðar sendu afkvæmi sín á vöggustofur og þau börn sem voru vistuð þar framan af barnæskunni.
Kristján Hrafn Guðmundsson yrkir hér af skáldlegu innsæi, húmor og þekkingu um hlutskipti móður sinnar og ömmu og bregður um leið birtu á þjóðfélag þessara tíma og tíðaranda. -
Ariasman
1.290 kr.Ariasman – frásaga af hvalföngurum eftir Tapio Koivukari er söguleg skáldsaga um Spánverjavígin þegar 31 baskneskur skipbrotsmaður var veginn af vestfirskum bændum haustið 1615 undir forystu Ara Magnússonar, sýslumanns í Ögri.
Tveimur árum áður en þessir atburðir urðu stendur ung stúlka, Kristrún að nafni, undir Kaldbakshorni og skolar ull. Hún sér segl við sjóndeildarhring, ókunn segl og heimamenn leggja á flótta undan útlendum sjóreyfurum, að því er þeir halda. En komumenn eru friðsamir hvalfangarar og góður kunningsskapur myndast á milli þeirra og heimamanna fyrir milligöngu sóknarprestsins. Sjálfur Vestfjarðakóngurinn, Ari í Ögri, leggur blessun sína yfir veru þeirra á Ströndum.
Saga Spánverjavíganna og aðdraganda þeirra er hér rakin frá sjónarhorni bæði Íslendinga og Baska. Martin de Villafranca er ungur og metnaðarfullur maður í sinni fyrstu för sem hvalveiðikapteinn örlagasumarið 1615. Hann ávinnur sér brátt traust og virðingu áhafnarinnar en samskiptin við heimamenn ganga brösuglegar. Um borð er ungur piltur, aðstoðarbeykirinn Gartzia de Aranburu, en leiðir hans og Kristrúnar liggja saman.
Skömmu fyrir brottför veiðimannanna úr Reykjarfirði um haustið skellur á mikið óveður og þá hefst atburðarás sem endar með þeim ósköpum sem enn eru talin eitt mesta óhæfuverk Íslandssögunnar.
-
Hóras prins af Hákoti
4.390 kr.Uppgjafabóndinn Hóras gerist róni í Reykjavík á sjöunda áratug 20. aldar. Hann kemur víða við sögu og er um tíma formaður 17. nefndar Reykjavíkurborgar og síðar forsætisráðherra en stefnumálin eru vafasöm og sögulok ill. Hóras prins af Hákoti er drepfyndinn harmleikur í bundnu máli, ortur af galsafenginni ófyrirleitni sem kankast á við klassískan skáldskap fyrri alda.
-
Áttaskil – Ljóð og lausavísur
4.890 kr.Hér birtast ljóð og lausavísur úr fórum skáldsins og kvæðakonunnar góðkunnu, en þar eru náttúruljóð í fyrirrúmi þótt ýmislegt annað komi við sögu. Í eftirmála segir Ragnar Ingi Aðalsteinsson frá Vaðbrekku m.a.: Þegar ljóð hennar eru lesin er eins og landið Ísland, með öllum sínum dyntum, veðurfarssveiflum og skapbrigðum hafi valið hana til að túlka sjónarmið sín.
-
-
Brimurð
4.390 kr.Brimurð er áttunda bók höfundar. Ástvinamissir er ávallt sár, hvort heldur sá sem hverfur til annarrar víddar hefur tvo fætur eða fjóra. En ástin deyr ekki, hún nær yfir allar víddir, því að elska er að lifa.
Brimurð er tileinkuð öllum dýravinum og eigendum þeirra, dýrunum, sem auðga lífið jafnt að fegurð, dýpt og gleði.
„Með síðustu tveimur ljóðabókum sínum, Varurð og Einurð, hefur Draumey Aradóttir markað sér bás meðal áhugaverðustu ljóðskálda á Íslandi.“
Soffía Auður Birgisdóttir -
Varurð
3.790 kr.Varurð er sjötta bók höfundar. Fimm ljóðanna hafa þegar hlotið verðlaun og viðurkenningar. Í bókinni býðst lesendum að reima á sig skóna og halda með höfundi í ljóðför um oddhvassar lendur óttans; allt frá upptökum hans að óumflýjanlegum átökunum við hann. Nestuð áræði, einlægni og varurð er áfangastaðurinn langþráð frelsið, friðurinn og fögnuðurinn sem bíður þeirra sem fletta af sér öllu því sem þeir töldu sig vera og kasta sér kviknaktir út í ógnvekjandi eldskírnina.