• Harðindi

    Harðindi

    Steinn leggur ríðandi af stað úr bænum og ætlar aldrei að snúa aftur. Hann hefur misst trúna á framtíðina eftir að lífið í landinu fór snarversnandi á aðeins örfáum árum. Hrakinn og særður er hann á mörkum þess að gefast upp þegar loks sjást blikur á lofti.

    Harðindi er spennandi og áleitin frásögn af ferðalagi manns og merar á nöturlegum tímum.
    Vilhjálmur Pétursson hefur starfað við þýðingar síðan hann útskrifaðist úr ritlist við Háskóla Íslands. Harðindi er fyrsta bók hans en sagan bar sigur úr býtum í handritasamkeppni Forlagsins, Nýjum röddum, árið 2026.
    4.790 kr.
    Setja í körfu