• Framtíðin á ferðinni

    Framtíðin á ferðinni

    Stelpa og strákur hittast óvænt í erlendri borg og verða ástfangin. Þau koma úr ólíkum menningarheimum og átta sig fljótt á því að þeirra bíða margar og erfiðar hindranir eigi heitar tilfinningar að dafna. Ástin er voldugt afl en nær miskunnarlaus veruleikinn að buga hana?

    Í þessari hugstæðu skáldsögu tekst Þórhildur Ólafsdóttir á við áleitið efni sem lítt hefur verið fjallað um í íslenskum bókmenntum. Sagan talar beint til nútímans þótt höfundur sviðsetji hana í Reykjavík, París og litlu þorpi á Íslandi fyrir hálfri öld. Löngu liðnum tíðaranda er lýst á næman og áhrifaríkan hátt og persónur bókarinnar verða ljóslifandi fyrir augum lesenda.

    Ólöf Þórhildur Ólafsdóttir lauk doktorsprófi í frönskum bókmenntum við Háskólann í Orléans í Frakklandi árið 1982. Hún var lektor og síðar dósent í frönsku við Háskóla Íslands í nokkur ár. Frá árinu 1988 hefur hún verið búsett í Strasbourg í Frakklandi þar sem hún starfaði við Evrópuráðið í aldarfjórðung. Hún hefur áður sent frá sér meðal annars skáldsögu og ljóðabók auk þýðinga á bókum Nóbelsverðlaunahafans Annie Ernaux.

    4.690 kr.
    Setja í körfu
  • Með minnið á heilanum

    Með minnið á heilanum

    Hvernig sér lítil sveitastelpa á árunum kringum 1960 veröldina sína ? Í þessari bók leyfir Þórhildur Ólafsdóttir, rithöfundur og þýðandi, barninu sem hún var að fá orðið, segja frá fólki, dýrum, húsum og náttúru í fjarlægum heimi. Barnið horfir á, drekkur í sig myndir, atburði, orð og sögur sem móta það fyrir lífstíð. Skynjunin birtist milliliðalaust og frásagnirnar ná að fanga almennan veruleika sem nær langt út fyrir stað og stund frásagnanna.

    Með minnið á heilanum er óvenjuleg minningabók. Minnið er hverfult og tilviljanakennt enda leitast höfundur alls ekki við  að finna eitthvað sem kalla mætti sannleika. Með hjálp barnsins er frekar reynt að uppgötva og nálgast, draga litlu stelpuna og nærumhverfi hennar upp úr hjúpi gleymskunnar sem endanlega mun hylja allt.

    Ólöf Þórhildur Ólafsdóttir lauk doktorsprófi í frönskum bókmenntum við Háskólann í Orléans í Frakklandi árið 1982. Hún var lektor og síðar dósent í frönsku við Háskóla Íslands í nokkur ár. Frá árinu 1988 hefur hún verið búsett í Strasbourg í Frakklandi þar sem hún starfaði við Evrópuráðið í aldarfjórðung.

    4.490 kr.
    Setja í körfu