• Bréf til Sólu

    Bréf til Sólu

    Bréf til Sólrúnar Jónsdóttur frá Þórbergi Þórðarsyni skrifuð 1922-1931

    Þessi bréf eru ástarbréf og eiga engan sinn líka í íslenskum bókmenntum. Enda eru þau varðveitt fyrir undarlega tilviljun, eins og glöggt kemur fram í inngangi Indriða G. Þorsteinssonar fyrir bókinni.

    Og þessi bréf segja ástarsögu sem er bæði falleg og fagurlega skráð. Og sú saga á vafalaust eftir að valda lesendum ýmsum heilabrotum.

    Sóla og Þórbergur unnust hugástum, það sjáum við glöggt af bréfunum. En hvers vegna auðnaðist þeim ekki að njótast? „Bagga mín. Þetta er svo löng saga,“ sagði Sóla við Guðbjörgu dóttur sína, þegar hún gekk á hana um sambandsslitin. Að öðru leyti er málið hulið þögn af hennar hálfu.

    Guðbjörg er dóttir Sólrúnar og Þórbergs og hafa báðir foreldrar hennar skilið eftir yfirlýsingar því til staðfestingar. En hún hefur ekki fengið það viðurkennt af dómstólum. Eru þau undarlegu mál skýrð hér og rakin í inngangi fyrir bréfunum og málsskjöl og dómsniðurstöður birtar í bókarlok.

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Ofvitinn

    Ofvitinn

    Þey, þey! Fótatak upp stigann. Hver? Vill hún strax fara að byrja á dönskutímunum? Það er barið. Hrekk við.
    Kom!
    Og inn í herbergið kemur hávaxin stúlka, dökkhærð, hrokkinhærð, ívið kinnbeinahá, rjóð í andliti, fersk og sælleg, hvítar tennur, drifhvítar hendur, sindrandi eldsveipur í mynd hreinnar meyjar. Hún gengur einörðum skrefum inn gólfið og segir í dálítið háum ögrandi tón: Gott kvöld! Og um leið skýtur hún á móti mér tinnudökkum, leiftrandi augum. Guð í hæstum hæðum! Þvílíkt augnaráð! Þvílíkt líf í þessu andliti! Sú er nú ekki alveg laus við að hafa svolítið af sál. Hún hlýtur að hafa afar mikið vit á skáldskap. Skyldi hún vera með Millilandafrumvarpinu?

    Haustið 1909 hóf Þórbergur Þórðarson nám við Kennaraskólann. Lærifeðurnir ollu honum sárum vonbrigðum og reyndust ófærir um að leysa lífsgátuna. Þórbergur bjó í Bergshúsi á Skólavörðustíg við sult og seyru, en hélt huganum heiðum og leit til stjarna á síðkvöldum. Námi sínu, félögum í Bergshúsi, skáldagrillum, stúkustandi, fyrstu ástinni og þorpslífinu í Reykjavík þessara ára lýsir Þórbergur snilldarlega í Ofvitanum, sem er ein ástsælasta bók hans.

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Einum kennt – öðrum bent

    Einum kennt – öðrum bent

    Tuttugu rigerðir og bréf

    1925-1970

    1.290 kr.
    Setja í körfu
  • Steinarnir tala

    Steinarnir tala

    Steinarnir tala er fyrsta bókin af fjórum í Suðursveitakróníku Þórbergs Þórðarsonar. Hér segir Þórbergur frá bernsku sinni á Hala í suðursveit á síðustu áratugum nítjándu aldar og setur sig í spor barns sem er að uppgvöta umhverfi sitt og náttúruna. Allt er lifandi í hugarheimi þess og ímyndunaraflinu eru engar skorður settar. Þórbergur lýsir af nákvæmni lifnaðar- og búskaparháttum þessa tíma, híbýlum, innanstokksmunum og tengslum fólk við náttúruna, dýrin og þá yfirnáttúrulegu krafta sem það trúði á.

    Steinarnir tala er lifandi vitnisburður um horfinn heim, færður upp í veldi skáldskaparins á þann frumlega og listræna hátt sem Þórbergur Þórðarson hafði meistaratök á. Verkið hefur alla þá eiginleika sem hann sjálfur vildi að góðar bækur hefðu, það er „fræðandi, göfgandi og örvandi“. Formála ritar Soffía Auður Birgisdóttir.

    990 kr.
    Setja í körfu
  • Bréf til Láru – Afmælisútgáfa með skýringum

    Bréf til Láru – Afmælisútgáfa með skýringum

    Bréf til Láru hefur kannski haft meiri áhrif en nokkur önnur bók, sem rituð hefur verið á íslenska tungu. … Hún verkaði eins og sprenging, sem molaði niður ýmsar villukenningar og úreltar hugmyndir. Fyrir þá, sem sprenging þessi var lausn, var hún gleðiboð – skapur, en [fyrir hina], sem fundu stuðning í villukenningunum og hinum úreltu hugmyndum, var hún hræðileg bók og höfundurinn vitlaus maður.“

    Þannig lýsir Þórbergur Þórðarson bók sinni, Bréfi til Láru, sem kom fyrst út árið 1924 en oft síðan. Bókin olli miklu fjaðrafoki og deilum en boðaði um leið nýja tíma í íslenskum bókmenntum. Ýmsum sveið undan hárbeitt­um skotum höfundar en þó er það ekki síst stórkostleg sjálfslýsing hans sem gerir Bréf til Láru að sígildri bók. Óborganlegur húmor Þórbergs nýtur sín til fulls í ádeilum hans og skopi sem hann beinir í allar áttir og ekki síst að sjálfum sér.

    Þetta einstæða meistaraverk kemur nú út í nýrri útgáfu á hundrað ára afmæli bókarinnar. Soffía Auður Birgisdóttir ritar inngang og tekur saman ítarlegar skýringar á mönnum og málefnum sem Þórbergur víkur að og opnar nýjum lesendum þannig dyr inn í galskapinn.

    4.690 kr.
    Setja í körfu
  • Einar ríki – Fagurt galaði fuglinn sá

    Einar ríki – Fagurt galaði fuglinn sá

    Einar ríki

    III. bindi

    Fagurt galaði fuglinn sá

    Þórbergur Þórðarson skráði

    2.990 kr.
    Setja í körfu
  • Einar ríki - Fagur fiskur í sjó

    Einar ríki – Fagur fiskur í sjó

    Einar ríki

    II. bindi

    Fagur fiskur í sjó

    Þórbergur Þórðarson skráði

    2.990 kr.
    Setja í körfu