• Aldrei nema vinnukona

    Aldrei nema vinnukona

    Aldrei nema vinnukona er sjálfstætt framhald bókarinnar Aldrei nema kona sem kom út 2020.

    Höfundurinn, Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir, hefur þýtt bækur og sjónvarpsefni auk þess að gefa út söguna Aldrei nema kona. Sú bók hefur notið mikilla vinsælda, einkum fyrir glögga mynd af kjörum kvenna á 18. og 19. öld.

    Eins og í fyrri bókinni eru öll nöfn, tímasetningar og stærri viðburðir sannleikanum samkvæmir og stuðst við bréf og opinber skjalagögn auk ýmissa rita og vefsíðna sem fjalla um þennan tíma.

    Í þessari bók fer fram tvennum sögum, af ferðinni frá Íslandi til Ameríku og minningarbrotum Þuríðar Guðmundsdóttur úr vistum í Skagafirði og Húnavatnssýslum.

    1.990 kr.
    Setja í körfu
  • Aldrei nema kona

    Aldrei nema kona

    Aldrei nema kona er heimildaskáldsaga sem fylgir þremur ættliðum kvenna í Skagafirði á átjándu og nítjándu öld. Þetta eru fátækar konur og lífsbaráttan er hörð en með þrautseigju og æðruleysi tekst þeim að komast af þrátt fyrir hart árferði og harðneskjulegt samfélag.

    Höfundurinn Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir var kennari í nær 40 ár. Í þessari sögu rekur hún æviferil langmæðgna sinna í Skagafirði og byggir þar á heimildum úr kirkjubókum, manntölum, æviskrám, dómabókum og ýmsum heimildum öðrum. Sögutíminn spannar meira en hundrað ár, frá miðri átjándu öld fram yfir miðja hina nítjándu.

    1.290 kr.
    Setja í körfu