• Fyrsti bjórsopinn og fleiri smálegar lífsnautnir

    Fyrsti bjórsopinn og fleiri smálegar lífsnautnir

    Þessi litla perla franska rithöfundarins Philippes Delerm sló hressilega í gegn þegar hún kom út í Frakklandi og hefur nú selst í meira en milljón eintökum þar í landi. Í stuttum köflum beinir höfundur sjónum að upplifunum hversdagsins sem veita gleði og lífsfyllingu, hvort sem það er fyrsti bjórsopinn, ilmur af eplum eða lestur á bók eftir Agöthu Christie. Hrífandi frásögnin einkennist af barnslegri forvitni og fyndnum athugasemdum – og minnir okkur á að njóta og meta allt hið smáa sem auðgar lífið.

    Bókin hlaut frönsku Grandgousier-bókmenntaverðlaunin en þau eru veitt fyrir bækur sem lofa glaðlyndi og lífsins lystisemd

    4.390 kr.
    Setja í körfu