• Mið-Austurlönd – fortíð, nútíð og framtíð

    Mið-Austurlönd – fortíð, nútíð og framtíð

    Mið-Austurlönd – sem afmarkast af Egyptalandi í vestri, Íran í austri, Tyrklandi í norðri og Jemen í suðri – eru einhver mesti suðupottur okkar tíma og hafa raunar verið um áratugaskeið. Nær daglega flytja fjölmiðlar þaðan fréttir af stríðshörmungum, kvennakúgun, misskiptingu og neyð. Um leið hafa víglínurnar færst óþægilega nærri Vesturlöndum – hryðjuverk í nágrannalöndum okkar og straumur flóttafólks meinar okkur að loka augunum fyrir ástandinu.
    Ýmis vandamál Mið-Austurlanda eiga rætur í tíðum og víðtækum afskiptum Vesturlanda af þessum heimshluta í fortíð og nútíð. Fleira kemur þó til því íbúar svæðisins hafa á síðastliðnum hundrað árum beitt ýmsum aðferðum til að finna hinn gullna meðalveg hefðar og nútíma, sjálfstæðis og jafnréttis, ofbeldis og framfara, trúfrelsis og einstaklingsfrelsis.
    Þessi þýðingarmikla bók kom fyrst út árið 2018, hlaut þá einstakar viðtökur og hefur ítrekað verið endurprentuð. Hér er um nýja útgáfu að ræða þar sem síðustu vendingum sögunnar eru gerð skil, meðal annars atburðum á Gaza, þróun mála í Sýrlandi og borgarastríði í Jemen.
    Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor í nútímasögu Mið-Austurlanda við Williams College í Massachusetts og gistikennari við guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands, er helsti sérfræðingur okkar í sögu þessa svæðis. Hér fjallar hann um öll meginstefin í sögu Mið-Austurlanda á yfirvegaðan og aðgengilegan hátt.
    6.990 kr.
    Setja í körfu