• Í fylgd norðanpósts í 150 ár

    Í fylgd norðanpósts í 150 ár

    Var póstur kominn?
    Nú ætlar honum að seinka!

    Magnús Pétursson fór á árunum 2021 til 2023 gangandi og á hestum milli Reykjavíkur og Skagafjarðar og fylgdi á ferðalaginu slóð norðanpósta fyrri tíðar sem fóru vegleysur og yfir heiðar og ár í öllum veðrum. Hann fer yfir póstsöguna, rifjar upp frásagnir um hetjudáðir landpósta og hrakninga og segir frá þætti þeirra í því að færa fólki nauðsynlega upplýsingu og fróðleik til að efla vitund þess um eigin getu í framfarasókn þjóðarinnar. Þetta er alvöruþrungin frásögn en oft í gamansömum tón.

    5.190 kr.
    Setja í körfu