• -15% Englatréð

    Englatréð

    Greta hefur gleymt fortíðinni. Með hjálp gamals vinar þarf hún að rifja hana upp – áður en hún hverfur henni endanlega. En fortíðin opnar dyr að sársaukafullum sannleika.

    Þrjátíu ár eru liðin síðan Greta yfirgaf Marchmont Hall og fallegar hæðirnar í Monmouthshire. Í aðdraganda jóla snýr hún loks aftur, í boði gamals vinar síns, Davids Marchmont, en Greta man ekki fyrri tengsl sín við húsið – það er afleiðing skelfilegs slyss sem hefur eyðilagt meira en tvo áratugi af lífi hennar. Á gönguferð um vetrarlandslagið rekst hún á gröf í skóginum og veðruð áletrunin nefnir aðeins að lítill drengur sé grafinn þar.

    Gröfin kveikir eitthvað djúpt innra með henni og með hjálp Davids byrjar hún að setja saman brot úr ekki aðeins eigin sögu, heldur einnig sögu dóttur sinnar, Chesku, sem var fórnarlamb hörmulegra aðstæðna sem hún réð ekki við. Og alls ekki engillinn sem hún virtist vera …

    Englatréð er grípandi fjölskyldusaga um minningar, ást og von – saga sem nýtur sín best á löngum vetrarkvöldum.

    Lucinda Riley er höfundur bókaflokksins um systurnar sjö sem fangað hefur hug og hjörtu íslenskra lesenda. Englatréð er sjálfstæð skáldsaga.

    Herdís Magnea Hübner þýddi úr ensku.

    Original price was: 5.190 kr..Current price is: 4.390 kr..
    Setja í körfu
  • Fiðrildaherbergið

    Fiðrildaherbergið

    4.990 kr.
    Setja í körfu
  • Morðin á heimavistinni

    Morðin á heimavistinni

    Sjálfstæð skáldsaga eftir höfund metsölubókanna um systurnar sjö. Nemi í fínum heimavistarskóla deyr skyndilega. Skólayfirvöld afgreiða andlátið sem slys en Jazmine „Jazz“ Hunter er send til að rannsaka málið. Á sama tíma reynir hún að standast persónutöfra fyrrverandi eiginmanns síns sem vill að þau taki saman á ný. En þá fer morðunum að fjölga.

    Charlie Cavendish, nemi í fínum litlum heimavistarskóla í Norfolk, deyr skyndilega. Skólayfirvöld eru fljót að afgreiða andlát hans sem slys en þrýstingur föður hans verður til þess að Jazmine „Jazz“ Hunter rannsóknarfulltrúi er send ásamt aðstoðarmanni sínum til að rannsaka málið. Brátt kemur í ljós að Charlie var myrtur og að hann lagði samnemendur sína í einelti. Var um hefnd að ræða? Jazz verður að svara þeirri spurningu og komast að því hvort sjálfsmorð prófessors við skólann tengist morðinu. Á sama tíma reynir hún að standast persónutöfra fyrrverandi eiginmanns síns sem vill að þau taki saman á ný. En þá fer morðunum að fjölga …

    Lucinda Riley er höfundur bókaflokksins um systurnar sjö sem notið hefur gífurlegra vinsælda undanfarin ár. Morðin á heimavistinni er sjálfstæð skáldsaga.

    5.490 kr.
    Setja í körfu
  • Atlas saga Pa Salt

    Atlas saga Pa Salt

    4.890 kr.
    Setja í körfu