• Ódauðleg ást

    Ódauðleg ást

    Sögur Ljúdmílu Petrúshevskaju eru sögur um fólk, alls konar fólk, sumir eru ástsjúkir, aðrir drykkfelldir, enn aðrir við það að missa vinnuna. Þær gerast í stórborginni, í yfirfullum íbúðum þar sem fátæklegar drykkjuveislur fara fram, í úthverfum, í skólastofnunum, á rannsóknarstofum — út um alla Moskvu. Engu er líkara en að skáldkonan taki einhvern einn úr hinum nafnlausa múg og einbeiti sér að því að sýna okkur sérstök örlög hans. Sögur hennar eru raunsæjar sneiðmyndir úr lífi borgarbúans, hnitmiðaðar, fyndnar, íburðarlausar og áhrifaríkar.

    Sögur Ljúdmílu Petrúshevskaju komu ekki út á bók fyrr en ritskoðun hafði verið aflétt í Rússlandi. Hún er nú talin með fremstu skáldum móðurlands síns.

    Ingibjörg Haraldsdóttir þýddi.

    1.290 kr.
    Setja í körfu